Kirkjuritið - 01.12.1944, Side 26

Kirkjuritið - 01.12.1944, Side 26
264 Kurt Zier: Okt.-Des. lögmál listanna og loks, að þetta er starf, sem krefst átaks og ekki aðeins stund og stund, lieldur án afláts. Enda þóll ég sé hér útlendingur og það kunni því að þykja fordild af mér og framhleypni að fara að hera fram tillögur um málefni íslenzku kirkjunnar, mun ég þó hætta á það. En það, sem gefur mér dirfsku til þess að segja hér það, sem mér býr í brjósti, er trú mín á manndóm islenzku þjóðarinnar, sem ég ann og virði. Ég leyfi n;ér því að bera hér fram þá tillögu, að sér- stakri nefrnl úr hópi prestlærðra manna verði falið að taka þessi viðfangsefni að sér, sem ég Iiefi rætt í þessu erindi mínu. Það, sem fyrir mér vakir með þessari tillögu, exy að kirkjan skajxi með þessum Iiælti vettvang fyrir kirkju- lega list, einskonar miðstöð í þessum mikilvægu inálum. Þeir menn, sem til þessa yrðu kjörnir, athugi síðan ástand kirkjunnar í þessu efni og þarfir liennar á þessu sviði. Þeir kynni sér lika þrengingar listanna og hlusti á raddir listamannanna og kynni sér getu þeirra til þess að verða við kröfum kirkjunnar og óskum. Þeir undirhúi síðan verkefnin og feli þau málurum, rnynd- höggvurum, tréskurðarmönnum, tónskáldum og öðrum listamönnum, sem lil greina koma við starf í þjónustu kirkjunnar. Ég er alveg sannfærður uin, að slík miðstöð fyrir kirkjulegar listir mundi geta unnið kirkjunni, listunum og þjóðinni i heild ómetanlegt gagn, og að áður en langt um liði, mundi henni takasl að sætla að fullu alla þessa aðila. Miðstöð þess yrði sá staður, er þeir allir gætu mætzt á og ræðzt við í bróðerni urn sameiginlegt starfssvið sitt. Ég vil taka það skýrt fram, að ég skrifa hér ekki sem útsendari listamanna. En að svo miklu leyti, sem ég þékki islenzka listamenn, veit ég, að þeir á meðal þeirra, sem með mestri alvöru helga sig listum sínum, þjást og' Iíða vegna Jxess, að þá skortir viðfangsefni, sem séu við þeirra hæfi, og að þeir þrá ekkert frekar en það

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.