Kirkjuritið - 01.04.1952, Side 44
108
KIRKJURITIÐ
lon 586, í herleiðingunni fram til 538, og eftir herleiðing-
una. Skal reynt að rekja þróun stefnunnar og gera grein
fyrir aðalatriðum boðskaparins á hverju tímabili. Verður
þó aðeins hægt að stikla á stóru.
Höfuðatriði í boðskap spámannanna fyrir herleiðingu er
þjóðfélagsástandið í Israel. Ritspámennimir héldu þar
áfram starfi spámannaflokkanna, en hófu í æðra veldi.
f fyrirheitna landinu, Kananslandi, hafði þjóðinni hlotnazt
„stórar og fagrar borgir, sem hún ekki hafði reist, hús
full af góðum hlutum án þess að hún hefði fyllt þau, og
úthöggna brunna, sem hún eigi hafði höggið út, víngarðar
og olíutré, sem hún ekki hafði gróðursett“ (5. Mós. 6,
10—12), Ásamt öllu þessu hafði þjóðin fengið konungs-
hirð og höfðingjavald. Fornt þjóðskipulag fsraels byggt
á ættarvitund var yfirgefið. Réttlæti og sáttmálatryggð
horfin. Því er ömurlegt um að líta með þjóðinni. Ríkir
undiroka fátæka. „Þeir selja saklausan manninn fyrir
silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó (Amos. 2, 61). „Þeir
reka eigi réttar hins munaðarlausa og málefni ekkjunnar
fær eigi að koma fyrir þá“ (Jes. 1, 23). — En ástæðan
til alls þessa er sú, að þjóðin hefir glatað trú sinni á Guð.
„Uxinn þekkir eiganda sinn og asninn jötu húsbónda síns,
en fsrael þekkir ekki og skilur ekki boð Guðs“ (Jes. 1, 2).
— Fyrir því fær fsrael ekki umflúið refsidóminn. „Því ef
þér trúið eigi, munið þér eigi fá staðizt", segir Jesaja spá-
maður (Jes. 7, 9). — En þjóðin „fyrirlítur hin straum-
hægu Sílóavötn", tákn trúarinnar (Jes. 8, 6), en treystir
á eigið dálæti, heldur jafnvel, að Guð geti ekki án hennar
verið. — Sú skoðun átti mikið fylgi meðal lýðsins, að
Guð, sem hafði útvalið fsraelsþjóðina, hlyti sakir nafns
síns, heiðurs síns að forða henni frá öllu grandi. — Upp-
hefð þjóðarinnar og veldi sé heiður Guði. Svo litu spá-
mennirnir ekki á. Guð er heilagur og réttlátur. öll ver-
öldin er í hendi hans. Hann leiðir þjóðirnar fram á svið
sögunnar og máir þær út. Þjóð, sem brýtur boð hans og
breytir móti vilja hans, hefir sjálf dæmt sig til tortím-