Kirkjuritið - 01.04.1952, Síða 50

Kirkjuritið - 01.04.1952, Síða 50
114 KIRKJURITIÐ fædda konungs Gyðinga", kunnað sálminn, myndu þeir hafa sungið hann með miklum fögnuði: Þetta var þeim svo heilagt og hjartfólgið og alvarlegt ferðalag, að þeir hafa fagnað hverju spori, sem leiðin sóttist. Styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. Þetta hefir ver- ið óraleið. Leið mannsandans og mannshjartans í leitinni að Guði sínum og skapara. Eitt sinn, sem oftar, voru þeir vinimir, Jones Burne og Ruskin, að ræða þessi mál. Burne þótti sagan af hirðunum fegurri og dásamlegri. Ekki vildi Ruskin fallast á það. Hann taldi, að hirðamir hefðu ekkert haft að missa, en allt að vinna. Ertu Ruskin sammála? Hirðarnir vöktu yfir hjörð sinni — og yfirgáfu hana og fóm rakleiðis til Betlehem að sjá þenna atburð. Yfirgáfu margir sínar hjarðir til að hlusta á þig — og tilbiðja Jólabamið í Háskólanum? En Ruskin bætti við: Vitringamir höfðu meira fyrir þessu. Þeir urðu að ferðast hættulegar og erfiðar óraleiðir. En hvemig stóð á þessum áhuga þeirra, trúmennsku og þreki? Guð hafði ekki látið sjálf- an sig án vitnisburðar, hinn lifandi Guð, sem gjört hefir him- ininn, jörðina og hafið, og allt, sem í þeim er, hann sem um liðnar aldir hefir leyft öllum þjóðum að ganga þeirra vegu, gjört þeim gott, gefið þeim regn af himnum og frjósamar árs- tíðir, og fyllt hjörtu þeirra með fæðu og fögnuði, segir postulinn. Að þessum konungi voru vitringarnir að leita. Vafalaust hafa þeir þekkt spádóm Bíleams: Stjarna rennur upp af Jakob, og veldissproti rís af ísrael (IV. Mós. 24,17). Á öllum öldum og meðal allra þjóða hefir þessi brennandi spurning bmnnið í sálum mannanna: Hvar er hinn nýfæddi konungur lífsins? Hvar fæðist hann? Eitt er landið Ægi girt — yzt á Ránar slóðum. Þú kannast við það. Og það var á þér að heyra, að Guð hefði útvalið íslenzku þjóðina í þessu litla, afskekkta eldfjalla-eylandi til þess að verða bæn fyrirheitisins um nýjan og betri heim. Og nú hefir geimþekkingin og stjörnu- fræði farið það fram, að gert er ráð fyrir að innan stundar verði, með aðstoð tækninnar, flogið eldflugum til annara hnatta. Til hvers? Að leita að Guði? Finna Guð? Eða verða sjálfir guð- ir? En þessir vitringar voru að leita að konungi lífsins, friðar- höfðingja. Þrátt fyrir flug til annara hnatta verður manns- hjartað órólegt, þangað til það finnur Guð og hvílist í honum, lífgjafa sínum og skapara.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.