Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 36
258
KIRKJURITIÐ
ast: málefni kirkjunnar. Þeir, sem ekki dreymdi drauma
hans um framtíðarkirkjuna, hlutu að misskilja hann og
finnast jafnvel fátt til um eldinn, sem í honum brann.
Hér var vafalaust hvorttveggja: veikleiki hans og styrkur.
Vér komum hingað frá heimili hins látna biskups, og
þótt þess hafi verið fagurlega minnzt þar, má ekki undan
falla að minnast þess einnig hér, hve hamingja hans var
stór í heimilinu. Biskupsfrúin og börnin hjálpuðust að
því, að gera heimilið svo úr garði, að ótrúlegt er að nokk-
urt heimili í höfuðstaðnum hafi hýst eins ótrúlegan fjölda
gesta úr öllum stéttum þjóðfélagsins, sem hús biskupsins.
Og biskupsfrúin gerði meira. Með lífsskilningi sínum, sínu
sannkristna hjarta og sinni mildu rósemi, veitti hún hinum
örgerða baráttumanni það heimilisskjól, sem honum var
ómetanlegt. Fyrir það stendur kirkja íslands í þakkar-
skuld, sem aldrei verður goldin, við þig, göfuga biskups-
frú. Börnum biskupsins, systur hans, sem dvelur hér, syst-
ur í fjarlægð, tengdadætrum hans, sonarbörnum og ást-
vinum öllum, vottum vér hjartanlegustu samúð.
Vér kveðjum hér í dag biskup Islands. I þessari gömlu
kirkju, þar sem hjartsláttur þjóðarinnar hefir heyrzt á
stærstu augnablikum hennar í meira en hálfa aðra öld,
heyrum vér enn í dag hjartslátt þjóðar, sem harmar biskup
sinn og horfir alvarleg á, að einu blaði íslenzkrar kirkju-
sögu er flett. Hér á þessum stað hefir kirkjan kvatt marga
biskupa sína. Síðastur var sunginn til moldar á Hölum
herra Sigurður Stefánsson, en sá hálærði herra, dr. Hannes
Finsson, síðastur í Skálholti, hinum háa stað, sem hófst
með vegsemd, en hrópar nú í niðurlæging sinni, hvort
íslenzk þjóð vilji sæmd sína eða eigi á níu alda afmæli
hins fyrsta stóls á Islandi. Síðan hafa biskupar verið
kvaddir hér í dómkirkjunni, og það ber Ijóma yfir nöfn
þessara manna, þegar þau eru nefnd: Herra Geir Vídalín,
herra Steingrímur Jónsson, herra Helgi Thordersen, dr.
Pétur Pétursson, herra Hallgrímur Sveinsson, herra Þór-
hallur Bjarnarson, dr. Jón Helgason, og nú bætist við: