Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 49
SIGURGEIR SIGURÐSSON BISKUP
271
4. Lög um söngmálastjóra þjóðkirkjunnar (nr. 73, 27.
júní 1941). Þessi lög hafa orðið mjög til þess að efla og
fegra kirkjusönginn í landinu. Samkvæmt skýrslu söng-
málastjórans, er gefin var biskupi vorið 1953, hafa alls
verið stofnaðir, síðan lögin tóku gildi, 165 kirkjukórar.
Einnig hafa verið stofnuð kirkjukórasambönd í flestum
prófastsdæmum landsins, og loks Kirkjukórasamband Is-
lands vorið 1951. Ennfremur hefir undir stjórn söngmála-
stjórans verið starfræktur um nokkur ár Söngskóli þjóð-
kirkjunnar, þar sem kennt er meðal annars söngur og söng-
stjórn, orgelspil, svo og tón og messusöngur þeim, er nám
stunda í guðfræðisdeild Háskólans.
5. Lög um sóknargjöld (nr. 36, 1. apríl 1948). Þar er
meðal annars sú breyting gjörð frá áður gildandi lögum,
að sóknargjöldin eru hækkuð úr kr. 1.25 í kr. 3.00—6.00,
og skal innheimta gjald þetta með vísitölu. Einnig er
sóknarnefndum gjört auðveldara fyrir en áður að jafna
niður aukagjaldi sem hundraðshluta af útsvörum safnaðar-
manna, ef hinar lögboðnu tekjur eigi hrökkva fyrir gjöld-
um kirkju.
Hafa lögin mjög stutt að því að rétta við f járhag kirkn-
anna, er bezt sést af því, að fram til 1948 var hámark
sóknargjalds kr. 1.25 á gjaldanda, en nú (1953) kr. 27.00.
6. Lög um breyting á lögum nr. 5Jj, 27. júní 1921 um
sölu á prestsmötu (nr. 15, 15. maí 1942). I lögum þessum
er ákveðið, að andvirði seldra prestsmata skuli renna til
kirkna þess prestakalls, sem naut hennar, en áður hafði
féð runnið til ríkisins. Fór síðan fram við biskupsembættið
uthugun á sölu prestsmata á undanförnum árum, er leiddi
til þess, að ríkið endurgreiddi söluverð hinna áður seldu
Prestsmata. Voru kirkjunum greiddar árið 1949 rífar 230
þúsundir króna vegna seldra prestsmata, og síðan hafa
Þmr notið andvirðis prestsmatanna jafnótt og seldar hafa
verið.
1. Lög um skipulag og hýsingu prestssetra (nr. 38, 1.