Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 60
Dr. theol. Alfred Th. Jörgensen,
einn af ágætustu forystumönnum
Lúterska heimssambandsins, andað-
ist í Kaupmannahöfn 12. september
síðastliðinn, 79 ára að aldri.
Hann var mjög nafnkunnur mað-
ur víða um lönd fyrir starf sitt að
mannúðarmálum. Þegar stofnað var
bandalagið: „Samhjálp safnaðanna" í
upphafi þessarar aldar, varð hann rit-
ari þess og kom afbragðs skipulagi
á allt starf þess. Helgaði hann upp
frá því allt líf sitt líknarmálum. Fyrst
og fremst í Danmörku, en síðar bættust við önnur lönd,
fleiri og fleiri. Hann átti frumkvæði að því, að stofn-
að var 1931 Bandalag þjóðkirkna til starfa að mannúðar-
málum og varð sjálfur lífið og sálin í þeim samtökum.
Hann gekkst fyrir ýmsum þinghöldum innan lands og utan
til þess að efla sem mest samstarfið og fékk miklu áorkað.
Einkum vann hann að því, að bágstaddir evangeliskir
söfnuðir og prestar fengju hjálp, og var hann í þeim efn-
um m. a. í samvinnu við kirkju Islands.
Hann kom einu sinni til íslands og varð mjög hrifinn
af fegurð landsins og tók einnig ástfóstri við þjóðina. Þegar
ráðizt var á kirkju íslands í dönskum blöðum, var hann
öruggur málsvari hennar og skrifaði ágætar greinar og
bað fyrirgefningar á skilningsleysi og fáfræði landa sinna.
Rithöfundur var hann góður og lætur eftir sig merk rit.
Ég kynntist dr. Alfred Jörgensen allmikið síðari hluta
vetrar 1951—52, og fannst mjög til um ævistarf hans,
ástúð, trúareldmóð og sálargöfgi. Hann var baráttumaður
með barnshjarta fyrir málefni guðsríkis, lærisveinn, sem
engin svik bjuggu í, eins og Natanael.
Dr. Alfred Th. Jörgensen.
Á. G.