Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 20
242
KIRKJURITIÐ
Hann var prófastur í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi frá
1. júní 1927 og út prestskapartíð sína og formaður Presta-
félags Vestfjarða frá stofnun þess 1. september 1928 til
1939 og í ritstjórn málgagns þess, Lindarinnar. Hann var
í skólanefnd Isafjarðarkaupstaðar, barnaverndamefnd og
sáttanefnd og gæzlustjóri Útibús Landsbanka Islands
á Isafirði. Hann gaf sig einnig mjög að félagsmálum, og
mátti um hann segja, að hann léti sér ekkert mannlegt
óviðkomandi í prestakalli sínu.
Sá félagsskapur, er hann unni heitast og mun hafa starf-
að mest fyrir, var Kristilegt félag ungra manna á Isafirði,
sem hann stofnaði sjálfur og stýrði síðan.
Skömmu eftir vígslu sína, 17. nóvember 1917, kvæntist
hann Guðrúnu Pétursdóttur frá Hrólfsskála. Þau eignuð-
ust 4 börn, sem eru öll á lífi:
Pétur sóknarprestur á Akureyri.
Sigurður bankaritari.
Svanhildur ritari í dómsmálaráðuneytinu.
Guðlaug húsmæðrakennari.
Heimili þeirra varð fljótt orðlagt fyrir frábæra gestrisni,
og mátti telja það miðstöð félagslífs Vestfjarðapresta.
Meðan séra Sigurgeir var prófastur, fór hann tvisvar til
náms utan, hið fyrra sinn til Danmerkur og Þýzkalands
um þriggja mánaða tíma, 1928, og hið síðara til Englands
og Danmerkur, um hálfs árs skeið, 1937—38.
Hann var skipaður biskup Islands 29. nóvember 1938
frá 1. janúar 1939 að telja og gegndi því embætti til dauða-
dags.
Á biskupsárum sínum fór hann oft utan.
Hann var fulltrúi Islands á 25. þingi Þjóðræknisfélags
Islendinga í Vesturheimi 21.—23. febrúar 1944 og ferð-
aðist síðan nær 3 mánaða skeið um byggðir Islendinga i
Norður-Ameríku. Var hann hvarvetna hinn mesti aufúsu-
gestur og honum sýndur mikill sómi. M. a. var hann kjör-
inn heiðursdoktor við háskóla Norður-Dakota og Wagner-
háskóla í New York.