Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 47
SIGURGEIR SIGURÐSSON BISKUP
269
hin dýrlega von mannlífsins og veruleiki, af því að hún
var stofnuð, helguð og vernduð af konungi lífsins, hinum
guðdómlega frelsara og leiðtoga vor mannanna.
Drottinn Kristur hlaut að leiða kirkju sína til sigurs,
svo að henni mætti auðnast um síðir að færa heiminum
frið, leggja lífgrös við sviðasár mannlífsins og knýta kær-
leiksband milli hinna sundurþykku bræðra um víðan heim.
Þetta var örugg von, trú og sannfæring hins látna biskups
vors, herra Sigurgeirs Sigurðssonar, allt frá fyrstu prests-
skaparárum hans á ísafirði til hinztu stundar á biskups-
stóli Islands.
Hann var ágætur maður.
Hann var mikill kirkjuhöfðingi.
Hann var elskulegur vinur.
Guð blessi minningu hans.
Þorsteinn Jóhannesson.
Biskupsstarfið.
Ritstjóri Kirkjuritsins hefir farið þess á leit við mig,
að gefa nokkurt yfirlit yfir embættisstörf hins nýlátna
biskups, dr. Sigurgeirs Sigurðssonar. Undan þessu hefi ég
ekki viljað færast, þar sem ég síðan vorið 1942 hefi verið
nánasti samstarfsmaður hans sem biskupsritari og skrif-
stofustjóri. Hins vegar er mér ljóst, að þessu efni er ekki
unnt að gjöra nein tæmandi skil í stuttri tímaritsgrein.
Verður hér og engin tilraun gerð til þess að lýsa hinum
ástsæla biskupi eða samstarfi okkar að hinum kirkjulegu
niálefnum í fullan áratug, þótt þar sé harla margt, sem
mér er ljúft að minnast og skylt að þakka. Ekki mun ég
heldur leitast við að leggja nokkurn dóm á embættisferil
biskupsins. Það heyrir sögunni og framtíðinni til. Aðeins
verður skýrt frá staðreyndum, raktir helztu þættir starf-