Kirkjuritið - 01.12.1953, Blaðsíða 38
260
KIRKJURITIÐ
Herra Sigurgeir Sigurðsson. Þegar þessi nöfn eru nefnd,
þeirra kirkjuleiðtoga, sem luku vegferðinni og voru kvadd-
ir hér á þessum stað, sjáum vér fyrir oss raðir kynslóð-
anna, sem koma og fara, „allar sömu ævigöng". Svo
streymir tímans stóra móða, og í djúpum sínum felur hún
örlög einstaklinga og þjóða, þúsund bros og þúsund tár,
örlög barnsins jafnt og þess, sem biskupstignina ber. Allt
breytist. Nýjar kynslóðir koma með ný lífsviðhorf og
nýjan sið. Hin ytri form falla, kenningar standa ekki í
stað. En einn er sá, sem ekki breytist: Hærra og hærra
ris Kristur yfir allt þetta hverfula, síbreytilega mannlíf.
Vér heyrum, eins og hljómkviðu þúsund radda, niðinn af
öldu aldanna. Hún sogar í djúpið kórkápur kirkjuhöfð-
ingjanna, og mítur biskupanna felur hún í gleymsku. Sic
transit gloria mundi. En hærra og hærra gnæfir krossinn
Krists, krossinn, sem næst liggur hjarta þess manns, sem
vill vera kristinn biskup. Og krossinn bendir hærra: Yfir
jarðneska kvöl, yfir vonbrigði, sorg og sár, inn í himin
Guðs. Þaðan stefnir ljós, það eru líknstafir Guðs, sem
lauga í dauðanum, jafnt biskupsins brá sem barnsins auga.
Dýrð sé góðum Guði í hæstum hæðum. Amen.
Þakkarorð frá Prestafélagi íslands.
Flutt af Ásmundi Guðmundssyni í Dómkirkjunni.
1 nafni Prestafélags Islands vil ég mæla hér nokkur
þakkarorð til biskups vors látins, dr. Sigurgeirs Sigurðs-
sonar.
Margt er hér að þakka.
En ég tel þó aðeins fátt, það er mestu varðar frá mínu
sjónarmiði.
Biskupinn var gæddur listamannseðli, og sérstaklega