Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1953, Page 58

Kirkjuritið - 01.12.1953, Page 58
280 KIRKJURITIÐ Hann var bókamaður mikill og átti bókasafn gott, bæði af íslenzkum og enskum bókum. Tók hann mjög þátt í störfum Þjóðræknisfélagsins og var í hvívetna ágætur Is- lendingur. Kirkjan átti hug hans allan. Við lát séra Egils Fáfnis hafa Vestur-íslendingar misst ágætan og mikilsvirtan leiðtoga, og það á bezta aldri. Hann vildi þjóna bæði Guði og mönnum sem fremst hann mátti. Er hans því sárt saknað, og menn munu lengi minn- ast hans með virðingu og þökk. Skömmu fyrir íslandsför mína átti ég tal við séra Egil Fáfnis. Hann bað að heilsa föðurlandi sínu, ættmönnum og æskuvinum. Hann sagði, að hann væri að ráðgera að heimsækja átthagana, sem hann hefði aldrei séð síðan hann skildi við Islandsstrendur fyrir 35 árum. Þessi draum- ur hans rættist ekki þannig. En þó hefir hann nú verið kallaður heim til föðurlands vors, sem er á himni og öll- um ættjörðum ofar, og fær að reyna sannleik orðanna: Þeir himin erfa, sem himin þrá. Eric H. Sigmar. Dr. theol. Holger Mosbech prófessor varð bráðkvaddur 3. september, 67 ára að aldri. Hann ritaði ungur doktorsritgerð um Essena og varð þrítugur dósent við Kaupmannahafnarháskóla. Kennslu- grein hans var Nýja testamentis fræði, og fór allt saman hjá honum: Frábær þekking, skörp hugsun og brennandi sannleiksást. Jafnframt kennslunni ritaði hann ýms skýr- ingarit, sem einkennir óvenjulega ljós framsetning og mik- ill lærdómur. Sumir þoldu ekki frjálslyndi hans í vísinda- rannsóknum, og dróst það því í tuttugu ár, að hann yrði

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.