Kirkjuritið - 01.12.1953, Side 73
PRESTAFÉLAG VESTFJARÐA
295
í sambandi við fundinn var messað á ísafirði og í Súðavík.
Geta má þess í sambandi við þessa fáorðu frétt, að á þessu
ári varð Prestafélag Vestf jarða 25 ára. Það var formlega stofn-
að 1. september 1928. Um uppruna þess segir svo í „Lindinni"
(riti félagsins), 1. árg. 1929: „Fyrir nokkrum árum síðan
áttu tveir prestar á Vestfjörðum samtal um hugmyndina og
ákváðu að gjöra það, sem í þeirra valdi stæði, til þess að leiða
hana í framkvæmd. Ýmsir af prestunum tóku þegar mjög vel
í þetta mál, en aðrir töldu ýmis tormerki á, og sögðu sem rétt
er, að stórir örðugleikar væru á því að sækja fundi langt að
á Vestfjörðum. Samgöngur eru enn mjög slæmar í þessum
landshluta, vegir litlu eða engu betri en fyrr á öldum..En
við nánari íhugun létu prestar þessa örðugleika ekki verða
félagsstofnuninni til tálmunar, því að öllum var það ljóst, að
hér var um mikilvægt mál að ræða, og stofnun félagsins mundi
ef til vill valda tímamótum í kirkjulegri starfsemi á Vest-
fjörðum. Á sóknarnefndarfundi á ísafirði 20. júní 1928, þar
sem mættir voru fulltrúar úr Norður- og Vestur-ísafjarðar-
prófastsdæmum, ásamt nokkrum prestum, var ákveðið að hefj-
ast handa og gera nýja tilraun um undirbúning til félagsstofn-
unarinnar. Prestunum, sem ekki voru mættir á sóknarnefndar-
fundinum, var ritað og stofnfundur boðaður, áðumefndan dag.“
Á stofnfundinum mættu 11 prestar. Þar voru samin og sam-
þykkt lög fyrir félagið. Ennfremur var á stofnfundinum rætt
um framtíðarhorfur og starfssvið og verkefni félagsins. I
sambandi við fundinn fór fram guðsþjónusta í Tsafjarðarkirkju,
þar sem séra Óli Ketilsson, Ögurþingum, prédikaði. í stjórn
félagsins voru kosnir: Formaður séra Sigurgeir Sigurðsson
Prófastur, ísafirði (síðar biskup), meðstjómendur séra Böðvar
Bjarnason, Hrafnseyri og séra Halldór Kolbeins, Stað í Súg-
andafirði.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður til fundahalda, hefir æ síðan
verið haldinn reglulega einn fundur á ári. Mörg mál hafa verið
tekin til meðferðar á fundum félagsins og rædd þar og rakin.
' Á tímabilinu hefir félagið 8 sinnum gefið út tímaritið „Lind-
ina“. Er rit þetta hið myndarlegasta, og hafa bæði prestar og
leikmenn lagt því efni.
Jón Kr. ísfeid.