Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Page 22

Kirkjuritið - 01.01.1960, Page 22
16 KIRKJURITIÐ engin kirkja væri til — nema við jarðarfarir, fermingar og stórhátíðir. Kirkjunnar menn eru allir, sem skíröir eru og ekki segja sig úr kirkjunni. En presturinn hefur sérstöðu að því leyti, að hann er hirðir ákveðinnar hjarðar. Sé hann góður hirðir, þá fer ekki hjá því, að honum sé umhugað um að hjörðin komist í gott haglendi, en standi ekki í svelti og vanþrífist. Vandamál ver- aldleikans hlýtur því að leggjast þungt á samvizkusama presta, enda leita þeir ráða til þess að vinna bót á meininu. Ekki er þó ævinlega leitað heppilegra úrræða. Það bætir gráu ofan á svart að tala um lélega kirkjusókn af prédikunarstól yfir þeim fáu mönnum, sem koma þó. Menn gleyma því ekki langtímum saman —■ já, e. t. v. er slík áminning það eina, sem menn muna lengi úr ræðunni. Og það er ekki æskilegt. Hina lélegu kirkjusókn verða kennimenn að bera eins og hvern ann- an kross meðan á helgihaldinu stendur — en taka hins vegar fyrir sem rannsóknarefni þar fyrir utan. Þess ber að geta, að ennþá er kirkjusókn í sumum sveitum furðu góð, og hún virðist örvast þar, sem barnastarf er fram- kvæmt af kirkjunni. Eins virðast kirkjuvikur vera svo vel sóttar að undrun sætir. Þetta sýnir meðal annars, að menn kunna vel að meta verðmæti kristindóms og kirkju, þegar þeir vilja snúa sér að þeim í fullri alvöru. Veraldleikinn —- secularisminn — segir einnig til sín í mati manna á verðmœtum. Svo mjög eru veraldleg verðmæti tekin fram yfir andleg verðmæti, að helgidagur safnaðarins er af mörgum nálega þurrkaður út. Menn eru hættir að gera sér dagamun. Þetta er skaðlegt andlegri og líkamlegri heilsu manna og dregur stórlega úr andlegu frelsi þeirra. Vélamenningin á sinn þátt í því að þurrka út alla helgidaga. Og þeir eru ekki fáir, sem starfa sinna vegna eru jafn bundnir á helgidögum sem aðra daga. Sums staðar erlendis eru 8% verkamanna eða fleiri þannig bundnir. Að sama skapi sem þetta ástand breiðist út, kemur fram þörfin á öörum guösþjónustutímum en liinum venjulegu. Er- lendis hafa kennimenn tekið tillit til þess alllengi. Og á sunnu- dögum eru víða erlendis fluttar fjórar guðsþjónustur á dag í sömu kirkjunno. Ekki væri þetta gert nema af því, að reynsl- an sýnir, að þörf er á því.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.