Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Page 27

Kirkjuritið - 01.01.1960, Page 27
IÍIRKJURITIÐ 21 „verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á Guðs ríkis braut“. Misskilningur og rangtúlkun. Kristnum mönnum hefur stundum verið núið því um nasir, að þeir kölluðu jörðina „eymdadal11 og byðu almenningi aðeins von um gæði himinsins. Þess vegna væri trúin „ópíum fyrir fólkið“. Þessar gömlu lummur voru nýlega velgdar upp í við- tali í einu dagblaðanna með þessari setningu: „Jörðin á ekki að vera biðstofa himnaríkis, heldur himnaríki sjálft“. Það gef- ur mér tilefni til að taka það fram, að það er hreinn misskiln- ingur og óafvitandi rangtúlkun að ætla, að Kristur boði nokk- urn tíma né nokkurs staðar, að jörðin sé biðstofa himnaríkis, — hitt auðvitað heldur ekki, að jörðin sé himnaríki. Haft er eftir Kristi, svo sem kunnugt er: „Lífið er brú, vér eigum að ganga yfir brúna, en ekki byggja hús vor á henni.“ Þetta er líking þess, að lífi voru sé ekki lokið með jarðlífinu. Vér eigum í vændum lengri leið. Og brúin getur aldrei verið biðstofa. Því segir hann líka, að vér eigum að ganga yfir hana. Frekar væri að líkja jörðunni við undirbúningsskóla en bið- stofu, að kristinna manna dómi. „Guðs ríki“ í merkingu N.T. taknar framar öllu ákveðið hugarfar, andlegt ástand, ákveðið •uannlegt samfélag í tengslum við og undir stjórn Guðs, þessa heims og annars. Sbr. Lúk. 17,21: Sjá, Guðs ríki er hið innra í yður. Ekkert er táknrænna fyrir kristnina fyrr og síðar en sú von, að vér mennirnir séum aðeins að feta oss áfram fyrstu lífs- skrefin hér á jörðunni, en eigum síðar að hafa vistaskipti og búa í öðrum heimi. Og kærleikurinn — Guðsást og mannást — frumskilyrði þess, að oss vegni vel bæði hér og þar. Fagurt og astríkt heimilislíf er kristin fyrirmynd fagurs mannlífs og Guðs ríkisins. Vegna þessa fer því fjarri, að andi biðstofunnar skapist með- al kristinna manna, heldur elst með þeim sú mesta starfshvöt °g umbótalöngun, sem sagan greinir frá. Benda má t. d. á Kvekara því til sönnunar, af því að dæmi þeirra er svo al- kunnugt. Ég get líka skýrt þetta með neikvæðu og jákvæðu dæmi. Lavater, einn af kunnustu heimspekingum og guðfræðingum

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.