Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 36

Kirkjuritið - 01.01.1960, Blaðsíða 36
30 KIRKJURITIÐ Sleppum alveg því, sem ógerlegt er — og Guð einn veit, hvers vegna ekki mátti verða, að heimurinn væri laus við erf- iðleika og sorgir. Hugsum heldur um það, sem felst í sögunni um kanversku konuna viðvíkjandi bænunum — og bænheyrslunni. Þar er eitt aðalatriði, sem ég ætla, að vér öll höfum gott af að leggja á minnið. Segið mér: Eru ekki margir farnir að afrækja bænirnar — já, vantreysta blessun og mætti bænarinnar? Mér heyrist það óneitanlega á unglingunum, sem ég hef uppfrætt á síðari árum. Ég segi alls ekki, að þar eigi allir sömu söguna — en það mun ekki of mælt, að í þéttbýilnu a. m. k. kunni meiri hluti barna og unglinga fremur fáar bænir — og hafi alls ekki fyrir fastan vana að biðja eitthvað daglega, bæði kvelds og morgna — eirs og oss, sem erum meira en miðaldra, var kennt — og vér vöndumst á. Og hvað getur komið hér til annað en vanmat á gildi bæn- arinnar — eins og ég sagði? Og stafar sú ótrú á henni ekki af tvennu: 1 fyrsta lagi því, að menn skilja ekki nógu vel, að bænin er fleira og meira en dagleg kröfuganga á fund Guðs. Hún er lika samtal við Guð, — og auðmýking gagnvart Guði — og helgun hugans til þjónustu við Guð. — Þessi hlið bænarinnar er oss alltof lítið minnisstæð og töm. En svo efumst vér líka um, að Guð heyri nokkrar bænir, af því að hann uppfyllir ekki kvabb vort undir eins — kemur ekki strax oss til liðs eða hjálpar, líkt og hjúkrunarmaður til sjúkl- ins, ef á hann er hringt. En slíkar kröfur og þess háttar skilningur er fjarri því, sem Jesús kennir um bænina. Þess gætir hvergi, að honum komi til hugar, að Guð upp- fylli allar bænir — hvað þá, að hann á hverri stundu gegni ákalli manna. Hér sem oftar túlkar séra Hallgrímur Pétursson svo vel skilr,- ing Drottins, er hann segir í 16. versi 3. Passíusálmsins: Ef hér verður, sem oft kann ske, undandráttur á hjálpinni, bið, styn, andvarpa æ þess meir, sem aukast vilja harmar þeir,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.