Kirkjuritið - 01.11.1963, Page 30
412
KIRKJURITIÐ
gefa keisaranum það, sem keisarans er, þakka ríkinu það, sem
það gerir vel, svo sem að sjá um að menn eru flestir læsir, skrif-
andi og reiknandi.
Hins vegar verður ekki lijá því komizt að benda mönnuni
á það, sem ríkismenningin kemur til leiðar á óbeinan liátt. f
prófskólakerfinu er æskilegast að nemendur líkist þéttum pott-
um, sem liægt er að liella í eins miklu fræðsluefni og skrifað
stendur í lögum, og liella síðan iir á tilsettum tíma eins miklu
og þarf til að standast próf. Þegar út í lífið kemur, þá sýnir sig
oft að ýmislegt vantar af því, sem liefði þurft að láta í pottana,
t. d. salt. Súpan verður dauf, leiðinleg og andlaus. Stundum vill
bún brenna við og verða römm. Þess vegna læra sumir aldrei
að átta sig á köllun sinni í lífinu. Þegar frændþjóðir vorar bafa
kennt heimilisfræði eða fjölskyldufræði eða bugsjónasögu í svo
sem áratug, þá spyrjum vér: Hvað er fjölskyldufræði, bvað er
hugsjónasaga? Yér erum a. m. k. alls ekki við því búnir að
kenna þessar greinar.
Segja má a& frœSslan gangi furðu vel, en uppclditi kagast hja-
ríkinu. Það verður KA-uppeldi. Ríkismenningin befur til-
lineigingu til að fá á sig sama svip ofan frá og niður úr: Ríkis-
útvarp, ríkisleikhús, ríkiskirkja, ríkisspítalar, ríkisútgefnar
námsbækur. Hér við bætist svo sérhlífni auðmannanna og ráð-
deildarleysi alþýðu. Andleg menning dregst aftur úr hinni verk-
legu samkvæmt kunnu lögmáli, tbe law of cultural lag.
Annað kemur einnig til greina: Nauðsynleg menning ver'har
aS víkja fyrir ónauSsynlegri. Skólastjórar vorir liafa undanfar-
ið gengið hér um borgina lil þess að leita að kennurum lil
kenna móðurmálið í unglingaskólimum, kenna íslenzkum ungl'
ingum íslenzka tungu. Og það gekk erfiðlega að fó menn til að
bætta í miðju námi til þess að bæta úr þcssarri brýnu þörf þjðð-
félagsins, að kenna unglingunum hversu nota skuli móðurinál-
ið. — Þótt skortur sé á kennurum, þá er samt nóg til af fólkn
sem vill standa á fjölum leikliúsa og leika þar níðinga og iH'
menni, eða mönnum, sem spila vilja fyrir danzi hálfar nsctm
eða syngja dægurlög. -— Það er ekki að ástæðulausu að beirnS'
frægir vísindamenn og bugsuðir tala um sýkingu menninga'-
innar, eins og Albert Schweitzer, Ericli Fromm og margir fleirn
Ríkið ver miklu fé — ekki til þess að lækna menningarsjúk-
dómana, heldur til þess að ala á þeim fyrst og lækna síðan