Kirkjuritið - 01.01.1965, Side 35
KIRKJURITIÐ 29
Með því að sljórnskipuð nefnd hefur mál þetta til meðferðar og hefur
cun eigi skilað áliti, tekur þingið fyrir næsta mál á dagskrá.
^ ar dagskrártillaga þessi samþykkt.
18.mál
Tillaga til þingsályktunar um æskulýðsfélög.
Flm. Jósefína Helgadóttir.
Kirkjuþingið ályktar að vinna heri að því, að stofnuð verði æskulýðs-
fólög þjóðkirkjunnar í öllum söfnuðum landsins. Prestar hafi forgöngu
»m stofnun fclaganna, hver í sínttni söfnuði, og verði aðalleiðheinendur
þeirra, en fái aðra áhugasama menn til liðs við sig að þeim verkefnum.
I’að sé markmið félaganna að fá ungmennin til þátttöku í guðsþjónustum
°g kirkjulegu starfi, en jafnframt að fegra og hæta skemmtanalífið, með
bví að halda hollar og áfengislausar skenmitisamkomur ungra manna,
°g beina hugum þeirra að göfugum viðfangsefnum til lieilla fyrir land og
þjóð.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar I. Alit liennar var á
þessa leið:
Nefndin er sammála ttm eftir nánari atliugun tillögunnar,
að fyrri hluti liennar orðist þannig:
Kirkjuþing fagnar aukinni æskulýðsstarfsemi kirkjunnar á undanförn-
unt árum, og telur nauðsynlegt, að sú starfseini nái til allra æskumanna
landsins, og liafi prestar og æskulýðsleiðtogar kirkjunnar nána samvinnu
nin þetta. Markmiðið sé m. a. að fá ungmennin o. s. frv. óhreytt niðurlag
tillögunnar.
I samræmi við þetta breytist fyrirsögn tillögunnar svo, að í stað æsku-
lýðsfélög koini: æskulýSsstarfsemi.
Þannig breytt var ályktunin samþykkt.