Kirkjuritið - 01.10.1965, Page 3

Kirkjuritið - 01.10.1965, Page 3
Páll Þorleifsson: Varðmennirmr og múrinn SynódusrœSa »í'g liefi skipaS varSmenn yfir múra þína, Jerúsalem, þeir skulu aldrei þegja, hvorki um daga né nælur. Þér, sem minniS drottinn á, unniS ySur cngrar hvíldar.“ — (Jes. 62, 6—7). Lengst liandan yfir djúp aldanna berast þau til vor þessi spá- mannlegu orð, innblásinn anda Guðs. Þau voru fyrst töluð á mikilli örlagastund. Hersveitir óvina voru á næstu grösum, lirun og áþján yfirvofandi. Það er þá, seni boðberi Guðs rís upp og flytur orð, sem berast frá manni til manns: „Ég liefi skipað varðmenn yfir múra þína, Jerúsa- lem.“ Hvað er þá að óttast. Um bina lielgu borg lykur rammgjör múr og þeir, sem standa vörð, eru lil þess kvaddir af sjálfum oi. Hann, sem gert liefur lieimana, styður þá. En þeir mega þá ekki gleyma því að vaka. Frá vörum þeirra skulu varnaðarorð berast, rödd jieirra bergmála nætur og daga baki samvizku þjóðarinnar, kveikja ebl, von, óbilandi trú. Og þeir skulu minna drottinn á. Það er, þeir skulu biðja fyrir Jteirri þjóð, sem þeir veita forstöðu. Geri þeir skyldu sína, mun borgin standa, lielgidómurinn vara, þjóðin lifa til þess að rækja sitt mikla köllunarstarf. Orð þessi urðu meðal annars til að bjarga þjóðinni á mikilli bættustund. Svo voldugur var boðskapur þeirra og álirif sterk. Og það sem meira er, enn í dag eiga þau brýnt erindi til allra þjóða, því eyðandi öfl ógna enn lielgum véum og livers konar óþján liverri þeirri kynslóð, sem er andvaralaus og gleymir sínum belgustu skyldum. 25

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.