Kirkjuritið - 01.10.1965, Blaðsíða 32
KIRKJURITIÐ
414
ir aðrir velunnarar Biblíufélagsins. Auk þess vorn boðnir full-
trúar frá Sameinuðu Biblíufélögunum, brezka, danska og
skotska Biblíufél.
Biskupinn yfir Islandi prédikaði við hámessu í Dómkirkj-
unni, sunnudaginn 17. október. Hann minntist í lok ræðu sinn-
ar ábrifamáttar Guðs orðs, útbreiðslu þess meðal þjóða lieims
og lieillaríkrar starfsemi Hins íslenzka Biblíufélags.
Afmælisbátíðinni í Dómkirkjunni um kvöldið stjórnaði
biskupinn. Ávörp fluttu kirkjumálaráðberra, Jóliann Hafstein,
próf. Björn Magnússon fyrir liönd liáskólans og guðfræðideibl-
ar. Aðalritari Sameinuðu Biblíufélaganna, dr. Olivier Béguin,
flutli erindi. Kveðjur fluttu dr. Jolin H. Williams, fulltrúi Hins
brezka og erlenda Biblíufélags og Mr. David McGavin fyrir
liönd Hins skotska Biblíufélags. Páll Kolka, læknir, flutti erindi
um Biblíuna og menninguna. Organleik — dásamlegan — ann-
aðist dr. Páll Isólfsson.
Gjafir bárust félaginu, frá kirkjumálaráðlierra, Ijósprentuð
útgáfa Guðbrandsbiblíu og frá fyrirtæki einu í Reykjavík
20. þús. kr. — Síðar liafa fleiri gjafir borizt Afmælissjóði. Stærst
og ánægjulegust slíkra gjafa kom frá sóknarnefnd Neskirkju í
Reykjavík, 15 þúsund kr.
Amælisrit 11 iblíufélagsins var seint á ferðinni og liefur enn ekki
verið sent út á land. Helmingur upplagsins kom daginn fyrir
afmælisbátíðina og seldist megnið af því í anddyri kirkna og
samkomuliúsa í Reykjavík og nágrenni.
Ritið þykir margra liluta vegna eigulegt. Verð í láusasölu
er kr. 100,00. Tíu eintök, árituð af erlendu fulltrúunum, verða
seld á kr. 500,00 livert. Ágóði rennur í Afmælissjóð, sem kostað
liefur útgáfuna.
Það eru vinsamleg tilmæli stjórnar Biblíufélagsins, að söfn-
uðir og félög um land allt, er meta að nokkru starfsemi jiess,
taki nú að sér sölu Afmælisritsins og sendi pantanir sínar sein
aBra fyrst til skrifstofu biskuos, eða undirritaðs, póstbólf 24.1,
Reykjavík.