Kirkjuritið - 01.10.1965, Page 21

Kirkjuritið - 01.10.1965, Page 21
KiRKjuniTin 403 bókakost hér lieima. Meðal annars kynntist liann þar af lestri enskra rita guðspekinni, sem hann varð þegar mjög liugfang- inn af. Allar meginhugsjónir hennar áttu vel við eðlisgerð lians. Ouðspekisfélagið var, eins og það mótaðist af anda frú Annie Besant og annarra viturra og mikilhæfra foringja, fyrst og fremst félag sannleiksleitenda, sem livatti menn til að leggja stund á samanburð trúarhragða, lieimspeki og náttúruvísindi, í því skyni að auka þekkingu og þroska sálarlífið. Lögð var þó umfram allt stund á hreint og göfugt líferni. Engum trúar- brögðum, sem þroskavænleg eru, ætti að verða mein að slíkum félagsskap, lieldur ætti liann einmitt að vera líklegur til að efla skilning á gildi trúarhragða og gera menn glöggsýnni á kjarna þeirra. Hér voru engar fullyrðingar á ferð um að allt væri liáskalegur heiðindómur, sem ekki laut ákveðnum kredd- um. Var ekki öllu heldur hið guðdómlega ljós að leitast við að hrjóta sér leið um myrkviðu mannlegra skynjana, ljós, sem brotnar ýmislega í mishreinum fleti Iiugans, en fáir spegla guðsmyndina skíra í skuggsjá sálar sinnar? Fyrst þurfti að fága lundarfarið og stunda skapgerðarlist. Þá var von til að sannleikurinn gæti opinberast. Hvernig ættu heimskir menn og lijátrúarfullir nokkru sinni að fá skynjað hið himneska ljós? Séra Jakob sá nú cill trúarbrögð í nýju ljósi: þau voru mis- jafnlega fullkomnar tilraunir til að leita sannleikans. Öll liöfðu þau einlivern sannleika að geyma. Flestum skjátlaðist í cin- liverju. Til þess þurfti hleypidómalausan og opinn liug að finna stein vizkunnar. En það var æðsta verkefni mannsins og liið eina nauðsýnlega. Að þessu vildi hann vinna. Og eftir að liann kom lieim gerðist liann um skeið forseti íslandsdeildar Guðspekifélagsins og hóf útgáfu á tímariti félagsins: Ganglera. Má óliætt full- Vrða, að með þcssu starfi liafi séra Jakob liaft víðtækari álirif á andlegt líf þjóðarinnar, lieldur en jiótt hann liefði gerzt prestur í þjóðkirkjunni. Guðspekifélagið í Reykjavík varð kannske aldrei nijög fjöl- niennt, en Jjað dafnaði vel undir liandarjaðri séra Jakobs. Inn í það söfnuðust ýmsir gáfaðir nienn, sem ekki fundu andlegri

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.