Kirkjuritið - 01.11.1968, Blaðsíða 48
462
KIRKJURITIÐ
Guð forsjónarinnar.
Við hlið húss míns
stendur þristofna tré
með fórnarskálinni.
Vottur þess
að ég veit
að þú ert Guð.
Onyame Bekyere,
segja kristnir menn
að hafi gefið okkur Jesúm Krist.
Drottinn,
leið mig i skilning þess.
Drottinn,
Iitlu guðirnir
eru ekki máttugri
en brögð töframannanna,
en þau brögð eru seiðmögnuð.
Brögð þeirra
ná þó ekki lengra en til þorpsins
og næsta nágrennis.
En þú ert Drottinn
yfir Kumasi og Accra,
hafinu og London.
Drottinn drottnanna,
gættu mín og minna
og pálmanna.
Drottinn,
ég vil ekki þurfa að óttast guðina.
Mikli Guð á himnum,
þú, sem ríkir
lengra en augað eygir.
Ég leita þin hikandi
með bænarkvak mitt.
Mikli, voldugi Drottinn,
þú mælir
og það verður.
Miklu hef ég ekki ráð á að fórna,
en þeir, sem á þig trúa segja,
að eyririnn geti verið mikill i augum þínum.
Ég vil trúa á þig
og láta af að óttast hjáguðina.
Hjálpa þú mér, Drottinn.
Amen.
(Afríkönsk bæn. — G. Á.)