Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 14
Sváfnis Sveinbiarnarsonar á Breiða-
bólstað, andaðist 20. febrúar, aðeins
tœpra 44 ára að aldri, f. 29. apríl
1930. Vér minnumst hennar með
þakklátum trega og biðjum góðan
Guð að styðja og blessa mann hennar
og börnin þeirra mörgu.
Látnar prestsekkjur
F|órar prestsekkjur hafa látizt á
liðnu synodusári:
Guðný Jónsdóttir, fyrri kona sr. Sig-
urðar Einarssonar, andaðist 6. sept.
76 ára að aldri, f. 17. febr. 1897.
Jóhanna Þorsteinsdóttir, ekkja sr.
Helga Konráðssonar, lézt 8. sept., 62
ára að aldri, f. 14. apríl 191 1.
Kristín Sigurðardóttir. ekkja sr. Her-
manns Hjartarsonar, lézt 10. nóv. á
85. aldursári, f. 16. júní 1889.
Aðalbjörg Sigurðardóttir, ekkja, sr.
Haralds prófessors Níelssonar, lézt 16.
febr., rúmlega 87 ára, f. 10. jan. 1887.
Þessara mœtu og merku kvenna er
minnzt í þökk. Vér heiðrum minningu
þeirra og vottum ástvinum þeirra
samúð.
Lausn frá embœtti
Lausn frá embœtti fyrir aldurs sakir
hefur fengið frá 1. des. 1973 sr. Sig-
urður S. Haukdal, prestur að Berg-
þórshvoli og prófastur í Rangárvalla-
prófastsdœmi. Sr. Sigurður er fœddur
7. ágúst 1903, lauk embcettisprófi
vorið 1928, var 1. des. s. á. settur
sóknarprestur í Flatey á Breiðafirði
og fékk veitingu fyrir því kalli 1. okt.
árið eftir. Hann varð prófastur í
Barðastrandarprófastsdœmi 1. júní
1931. Var skipaður sóknarprestur i
Landeyjaþingum 1. júní 1945 og hef-
ur þjónað því kalli síðan. Hann var
settur prófastur í Rangárvallaprófasts-
dœmi 15. sept. 1969, skipaður 1. jan.
1970.
Sr. Sigurður Haukdal hefur notið
mikillar hylli sóknarbarna sinna fyrr
og síðar. Öll presísleg þjónusta hans
í kirkju sem utan einkennist af alúð
og einlœgni og eðlislœgri fágun.
Hann hefur jafnan þótt góður gestur
heimilanna, hvort sem var á gleði-
eða sorgarstundum, sakir glaðvcerð-
ar og karlmannlegrar hlýju. Þá hefur
verið gott að scekja heim þau hjón-
in, frú Benediktu Eggertsdóttur og
hann. Störf hans að almennum mál-
um hafa og verið mikils metin.
Þökk þeim hjónum fyrir árin og
störfin að baki. Guð blessi þeim allu
sem ókomið er.
Sr. Valgeir Helgason, prestur í Ás-
um og prófastur í Skaftafellsprófasts-
dœmi, sem orðinn er sjötugur, gegnir
vegna áskorana sóknarbarna sinna
embœtti enn um sinn.
Sr. Björn Magnússon, prófessor,
lœtur nú af embcetti eftir langan feril
sem prestur og prófastur fyrst en síð-
an og lengst guðfrceðiprófessor. Mik-
ill meirihluti íslenzkra presta er nem-
endur hans og þá jafnframt unnend-
ur vegna kynna sinna af honum sem
kennara og manni. Hann er hinn
mesti afkastamaður í ritstörfum °9
hefur leyst af hendi verk, sem fáum
má endast örendi til að skila af ser'
því heldur sem þau verk hans, sem
mest eru að vöxtum hafa í rauninm
verið tómstundavinna. Orðalykill hans
að nýja Testamentinu er hverjom
108