Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 24
riðla réði
rígur manna.
Réðu ráðum
rekkar horskir,
sóru sátt,
er setti Þorgeir,
vel að virða,
vel að halda,
lögum lúta
lands, er segði hann.
Gekk upp Þorgeir
þekkur öllum.
Þessi lög
í landið setti:
Það er upphaf okkar laga:
Allir menn í þessu landi,
skulu þegar skírast láta;
skyldir síðan Kristni að halda.
Lokaorð 1. hluta
Engu blóði íslendinga
úthelt var við kristnitöku.
Drottinn sjálfur sigur veitti
sinni trú í landi voru.
Miskunn hans í mörgu birtist;
mœtti þetta fyrst til telja.
Fœrum honum hrós, sem ber oss,
hœstum föður allra manna.
GLORIA
Dýrð sé Guði í upphœðum.
Og friður á jörðu og velþóknun yfir
mönnunum.
Vér lofum þig.
Vér göfgum þig.
Vér tilbiðjum þig.
Vér dýrkum og heiðrum þig.
Þakkir gjörum vér þér sakir mikillar
dýrðar þinnar.
Drottinn Guð,
himneski konungur.
Guð faðir almáttugur.
Drottinn, eingetinn sonur,
Jesús Kristur og heilagur andi.
Drottinn Guð.
Lamb Guðs,
sonur föðurins.
Þú, sem burt ber heimsins syndir,
miskunna þú oss.
Þú, sem burt ber heimsins syndir,
meðtak grátbeiðni vora.
Þú, sem situr á hœgri hönd föðurnum,
miskunna þú oss.
Því að þú einn ert heilagur,
þú einn ert Drottinn,
þú ert hinn hœsti,
Jesús Kristur.
Með heilögum anda
í dýrðinni Guðs
Föður.
Amen.
II. HLUTI
Inngönguvers
Héldu höldar
heim af þingi.
118