Kirkjuritið - 01.06.1974, Page 26
Hún fjallar um þó eigind manns
að eira hvergi við,
en hiklaust neyta boðs og banns
að breyskra manna sið.
Þó á oft syndin léttan leik
og leiðir menn í villu og reyk.
Þá gleymist oft í glaumi valds:
Hjá Guði ber að leita halds.
Lokaorð II. hluta
En trúin með þjóðinni lifði og leiddi
og lýsti er myrkur í hugina smó.
Krossinn með bœninni óttanum eyddi;
altarisgangan gaf sálinni fró.
CREDO
Ég trúi á Guð. Föður almáttugan.
Skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesúm Krist, hans einkason,
Drottin vorn, sem getinn er af
heilögum anda,
fœddur af Maríu mey, píndur undir
Ponfíusi Pílatusi,
krossfestur, dáinn og grafinn.
Steig niðurtil heljar, reis á þriðja degi
aftur upp frá dauðum.
Sfeig upp til himna, situr við hœgri
hönd Guðs föður,
almáttugs, og mun þaðan koma að
dœma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga
almenna kirkju,
samfélag heilagra, fyrirgefningu
syndanna,
upprisu holdsins og eilíft líf.
120
Ég trúi á Guð. Föður almáttugan.
Skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesúm Krist, hans einkason,
Drottin vorn.
Amen, amen.
III. HLUTI
Inngangsvers
I trúnni og traustinu
treysti sig þjóðin,
því enn biðu þrautir og áþján og böl.
Og Drottinn gaf dirfsku
og dugnað á öldum,
sem fólkinu fœrðu hungur og kvöl.
Því Guð vor er góður
og gleymir ei þeim,
sem léði hann líf til að
lifa í heim.
Trú á bjargi byggð
Því breyskleiki mannanna breytir ei
Guði;
hans boð ekki haggast, þótt gleymist
þau þrátt;
í jarðlífsins asa og jagi og puði,
þar jafnan þú getur þér vegvísi att.
Og eins er með kristinna kirkju a
jörðu;
á kenningum Jesú hún grundvölluð
er.
Og hvað sem að klerkar og höfðingjar
gjörðu,
hún haggast þó eigi, en trú sína ver.