Kirkjuritið - 01.06.1974, Side 29
Er allt vort Iíf og limir,
lán vort, heill og ráð.
Fólgið í Herrans hendi;
hvílir í Drottins náð.
Því ennþá er sál vor soltin
°g sárþyrst hún leitar hans,
sem kom til að kynna oss Drottin,
Krists, sonar Guðs og manns.
Hann seður, ef snýrðu þér til hans;
hann sefar, ef harmur þig sker;
hann styður, ef stuðnings þú þarfnast;
hann stýrir, ef villtur þú fer.
Hann lofa skal lýður allur,
hann lofa skal þjóðar sál,
hann lofa skal gervallt landið;
hann lofa á íslenskt mál.
SANCTUS
Heilagur, heilagur,
heilagur ert þú Drottinn Guð alsherjar.
Eallir eru himnarnir og jörðin af þinni
dýrð.
Hó
hó
sianna, hósíanna,
síanna í hœstum hœðum.
Eftirmáli
Verk þetta, sem ég hef nefnt „Kristniþátt, er
samið að tilhlutan hr. biskupsins yfir íslandi,
Sigurbjörns Einarssonar, og var þvi lokið i mai-
mánuði 1974. Verkið var œtlað til flutnmgs
í sambandi við prestastefnu á 1100. afmœlis-
ári þióðarinnar, en flytjendur voru kirkjukór og
organisti Garðakirkiu undir st|órn höfundar.
Allur texti verksins er eftir undirritaðan, þegar
frá eru talin Kyrie, Gloria, Credo og Sanctus,
en þessir liðir eru teknir upp eftir síðari hluta
Messubókar sr. Sigurðar Pálssonar og Hauks
Ágústssonar, cand. theol., 1972.
Tónlist er til við þetta verk og er hún einnig eftir
undirritaðan. Sá hluti hennar, sem sunginn er
við framantalda liði heilagrar messu, er tekin
upp úr áðurnefndri messubók.
Nokkrir menn hafa gert mér þann greiða að
hlýða á og lesa uppkast að Kristniþœttinum.
þeir eru Einar Siguroddsson, skólastjóri, Einar
Ólafsson, kennari, sr. Sigmar Torfason og Hilda
Torfadóttir, konan mín. Ég fœri þeim þakkir fyrir
þœr ráðleggingar og þá hvatningu, sem þau
veittu mér.
Lokið að Hofi í Vopnafirði
þann 26. maí. 1974.
Haukur Ágústsson
^essaður sé sá,
sem kemur í nafni
Guðs.
^ósíanna, hóslanna,
°síanna í hœstum hœSum.
46- sálmur DavlSs.
123