Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 38
En ef svar Drottins hindrast og fœr
ekki framgöngu, mun hún biðja hann
að láta þá finna slíkan þrýsting undir
feldi ábyrgðar þeirra, þrýsting fra
kristnum þegnum í þessu landi, oð
þeir sjái sig tilneydda til ákvarðana
kristninni til eflingar og kirkjunni til
styrktar í þjónustu hennar.
Erindi þetta var flutt á prestastefnu 1974.
Predikunarstóll Grenjaðarstaðarkirkju
Á myndinni á bls. 136 sjást greinilega upphafsstafirnir T og S, fanga-
mark síra Tómasar Skúlasonar. Þeir stafir vöktu grun dr. Kristjáns
Eldjárns um, að Jón Hallgrímsson frá Kasthvammi hefði gert stólinn
og málað hann. Stóllinn er gerður árið 1797, en Gréta Björnsson mál-
aði hann að ýju 1965. Þau Jón og Gréta Björnsson sögðu nánar fra
stólnum og atvikum í samtali, er birt var í júníhefti Kirkjurits 1971.
Ljóðið um Legumkloster
í Lögumklaustri á Jótlandi er fornt helgisetur, sem nú er orðið mennta-
og helgisetur í nýjum stíl. Jens Rosendal er kennari á þeim stað og
eitt hinna athyglisverðari sálmaskálda Dana um þessar mundir.
Sjá bls. 152
þjóð vora af þögninni og til póli-
tískrar ábyrgðar. Hún mun biðja fyrir
stjórnvöldum og þeim öðrum, er
ábyrgð hennar bera á veraldlegu
sviði. Hún mun biðja Drottin sinn að
gefa þeim „viturt hjarta", að þeir
fái œtíð tekið viturlegar ákvarðanir
líkt og Þorgeir Ljósvetningagoði forð-
um, er valið stóð um kristni eða heiðni
í landinu. í þeim sporum standa
stjórnmálamenn aftar en þá grunar.
132