Kirkjuritið - 01.06.1974, Page 47
hana fró þessum heitum. Hún tjáði
honum þessa nýju köllun, að gefa
sig algjörlega til þjónustu hinum aum-
ustu allra manna í fátœkrahverfun-
um.
Svarbréf fékk hún frá páfanum
hinn 12. aprll 1948. í því tjáði hann
henni, að hún hefði leyfi kirkjunnar
hl að fara úr klaustrinu og lifa utan
Ve9gja þess. Þetta merkti, að hún
skyldi vera nunna áfram og lúta boð-
Urn erkibiskupsins ! Calcutta.
Hinn 8. ágúst 1948 lagði hún niður
búning Loreto-reglunnar, en tók upp
í hans stað, hvltan „sari" með blárri
rönd og krossi á vinstri öxl. Frá
klaustri sínu hélt hún til Patna. Þar
sótti hún námskeið amerískra hjúkr-
unarsystra í hjúkrunarfrœðum, svo að
hún yrði fcer um að sinna sjúkum
mönnum, er hún kcemi í hús fátœkl-
'nganna. Þarna var hún í þrjá mánuði,
en hélt síðan aftur til Callcutta og
settist að hjá nunnureglu, sem nefndi
Sl9 „Hinar litlu systur hinna fátœku".
Starf sitt meðal hinna fátœku hóf hún
með kennslu. Hún kenndi börnunum
götunni. Fimm voru þau fyrsta dag-
',nn/ en nú eru börnin fimm hundruð
a þessum stað, sem koma daglega í
^kólann. Hann er til húsa 1 fjölbýlis-
asi í einu fátœkrahverfinu.
hörnunum eru kennd undirstöðuatriði
hreinlœtis þ. e. hvernig eigi að þvo
Ser og svo lestur. Enginn skóli hafði
viiiað taka þessi börn og kenna þeim.
hegar fréttist um þessa byrjun hinn-
ar ouðmjúku og hugrökku nunnu
^omu þrjár stúlkur úr skólanum, sem
Un hafði kennt í áður og gengu
1 ''Ós við hana. Þannig hófst starfið
hh0® þessu samfélagi og brátt nefnd-
ist hún móðir Teresa. Starfið
óx enn. Konur frá Calcutta, sem kennt
höfðu við sama skóla og hún áður
fyrr, komu henni nú til hjálpar við
kennsluna og enn óx starfið.
Er hœgt að gera þetta án fjármuna?
Nei, — það er ekki hœgt.
Fimm r ú p í u r átti hún, er hún
byrjaði, en er fólk frétti af starfi henn-
ar, þá tóku þeir, er betur máttu sín,
og höfðu tilfinningu fyrir þessu starfi,
að gefa bœði fjármuni og hluti. Hér
var forsjón Guðs áþreifanleg, því að
ekki hafði hún beðið einn eða neinn
um peninga. „Ég vildi þjóna hinum
fátœku af kcerleika til Guðs og veita
þeim það, sem hinir riku fá fyrir pen-
inga".
Enn kom liðsauki. Bengalstúlka, hin
fyrsta, sem bauð sig fram til þjónustu
og samfélags við móður Teresu. Hún
hafði verið nemandi hennar. (Hún
nefnist systir Agnes og er hœgri
hönd móður Teresu í starfi). Reyndar
varð það svo, að fyrstu 10 stúlkurnar,
sem komu til hjálpar og til samfélags
við móður Teresu, höfðu verið nem-
endur hennar. Ein af annarri gáfu þœr
sig Guði til þessarar þjónustu. Síðan
bcettust við lceknar og hjúkrunarkonur
sem sjálfboðaliðar. Árið 1950 var svo
stofnuð systraregla, er móðir Teresa
veitir forstöðu, og á hún heimili ! Cal-
cutta. Reglan nefnist „Sendiboðar
kœrleikans". Þegar móðir Teresa er
innt eftir upphafi og samfelldu starfi
hennar og systranna, þá segir hún: „Ég
var svo örugg þá og er ennþá sann-
fcerð um það, að það er Kristur, sem
verkið vinnur. Þess vegna var ég ekki
hrœdd. Ég vissi, að teldist þetta vera
mitt starf, þá myndi það deyja með
141