Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 52
peningum. Mönnum kann að virðast
mikils krafizt, og það er svo, en þetta
miðar við fórnandi þjónustu við hinn
hungraða, nakta og heimilislausa
Krist. Þessi þjónusta, þessi kœrleikur
og þessi sannfœring veitir systrunum
gleði. Allir, sem þeim kynnast sjó,
að þœr eru í sannleika glaðar, þœr
eru ekki að sýnast. Þá vœri starf þeirra
hrunið í rúst og trú þeirra blekking.
Þœr hafa fundið líf sitt í samfélaginu
við Krist.
Þegar ókunnugur kynnist þessu
starfi, þá tekur hann eftir því, hversu
hinn ytri búnaður er allur fábrotinn.
Ýmsir segja því, að svona starfsemi
eigi einhver stór ríkisstofnun að sjá
um og fráleitt sé að œtla, að systurn-
ar geti risið undir svo stórfelldum
verkefnum. Móðir Teresa svarar þess-
um athugasemdum á þann veg, að
sé litið á starfið með augum systr-
anna, þá séu þœr sjálfar ekkert, þœr
geti ekkert gert í mannlegum mœtti
eingöngu, „en í Kristi getum við gert
allt. Þess vegna er þetta starf mögu-
legt. Við erum sannfœrðar um það,
að það er Jesús Kristur, sem starfar í
okkur fyrir hina fátœku. Þolgœðið og
styrkleikinn kemur frá Drottni, þess
vegna samneytum við honum sífellt í
heilögu altarissakramenti. Þess vegna
byrjum við hvern dag með messunni.
Það er við altarið, sem við mœtum
þörf hinna þjáðu og fátœku í trú á
Jesúm og sjáum, hve þjáningin höfð-
ar til kcerleika, fúsleika og hjálpsemi".
Trú
Þegar móðir Teresa er beðin að segja
frá trú systranna, sem er undirstaðan
146
undir fórnarþjónustu þeirra, þá segir
hún: „Trúin er gjöf frá Guði, án henn-
ar er ekkert raunverulegt líf. Til þess
að starf okkar beri ávexti, sé helgað
Guði og sé fagurt, þá verður það að
vera reist á trú, — trú á Jesúm Krist,
sem mœlti: Hungraður var eg, nakinn
var eg, sjúkur var eg, án heimilis og
þér vitjuðuð mín. Á þessum orðum
er allt starf okkar reist. Þessa trú skort-
ir marga í heiminum nú á dögum,
vegna hinnar miklu eigingirni og eftir-
sóknar eftir ávinningi. Sönn trú birtist
í kœrleika, Kœrleikur og trú fara sam-
an og veita lífinu þá fyllingu, sem þor
á að vera. Til þess að birta mönnum
þessa trú verður að setja sig í spor
annarra. Við getum ekki sýnt kœrleika
Krists á annan hátt en þann, að hann
komi fram á náunga okkar. Náungo
okkar höfum við fyrir augunum 1
Krists stað. Hœttan er sú, að menn
rugli sqman félagslegri þjónustu og
þessu starfi okkar og telji, að verkið
sé unnið vegna verksins sjálfs. Þessi
er hœttan, ef við gleymum fyrir hvern
við störfum. Starf okkar á að birta
kœrleika okkar til Jesú. Hjarta okkar
þarf að vera fullt af elsku til hans,
við birtum þennan kœrleika í starfi
okkar fyrir hina aumustu allra
manna".
Hindúi nokkur rœddi eitt sinn ulTI
starf sitt, sem var félagsmálastarf, °9
starf systranna og mœlti, að hann og
samstarfsmenn hans ynnu að félags-
legri þjónustu og sömuleiðis systurn
ar, en mismunur starfsins vœri fólg'n
í því, að þeir störfuðu fyrir eitthva ,
en systurnar fyrir einhvern.
Það er í þessum mismun, sem se
verður, að systurnar starfa fyrir -les