Kirkjuritið - 01.06.1974, Side 68

Kirkjuritið - 01.06.1974, Side 68
Utanstefnusaga Nokkur blöð um frændur vora austan hafs ÓráSsíumaSur og kristniboSi Enn var sólblíðan söm og blikandi fegurð himins og jarðar, er þau síra Arvid Ekberg og Helene, kona hans, héldu á leið heim. íslendingar, tveir, voru í vagni þeirra. Ekið var fyrst um Rjúkandal, meðfram Tinnvatni, hyl- djúpu, þar sem föðurlandsvinir sökktu norskri ferju, er Þjóðverjar höfðu hlað- ið ,,þungu vatni", — síðan upp Tess- ungdal, brattan sœludal, og upp á Harðangursvíðáttu. Þar þótti íslend- ingum vegur og gróðurfar líkjast mjög því, sem gerist á íslandi, enda var þá komið í liðlega 1100 metra hœð. Til lítils er að telja örnefni og staði. Hvarvetna blasti við hin norska feg- urð og yndisleikur, jafnt í djúpum döl- um sem hátt í fjöllum. Hjá bœnum Geiló á mótum Skurdals og Halling- dals eru frœgar slóðir skíðamanna. Þar brugðu sér prestshjón tvenn í skíðalyftu til gamans. Var síðan gengið á sjónarhœð þá, sem Prest- holt heitir. Var þá vakin forvitni um norska merkingu orðsins holt. Ef rétt er munað, taldi síra Arvid Ekberg orðið líkrar merkingar og íslenzka orðið rjóður. Ekið var nokkurn spöl austur og niður Hallingdal. Þar er bœrinn Torpo, og standa þar tvœr kirkjur hlið við hlið í sama kirkjugarði, önnur eldforn. Slíkt þótti íslendingum nýlunda, °9 þar eð hin eldri kirkjan var stafa- kirkja, fýsti þá mjög að gefa henni gaum. í sama mund bar á góma hino elztu steinkirkju í Noregi, kirkjuna 1 Mostur á Hörðalandi. Helene Ekberg minntist þess, að hún hafði heyrt síra Harald Hope segja frá presti einum, sem komið hafði við byggingarsögo þeirrar kirkju, en verið hinn mesti ° ráðsíumaður og því verið sendur ' íslands sem kristniboði ,til þess a gera yfirbót. Var sýnt, að þar mun ' komin gömul saga af Þangbran ' presti úr íslenzkum bókum. Snom Sturluson segir raunar frá því í Heims kringlu, að Ólafur konungur Tryggv° son hafi fyrst stigið á land ! Noregn þar sem heitir Mostur og látið syngia þar messu í landtjaldi. Síðan ha kirkja verið gerð í þeim sama sta 162

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.