Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 76
Frd tíðindum beima
Þjóðhátíð að Hólum í Hjaltadal
Þjóðhátíð Skagfirðinga og Siglfirð-
inga, sem jafnframt var hinn árlegi
Hóladagur, var haldinn að Hólum í
Hjaltadal, sunnudaginn 23. júní s. I.
Þjóðhátíðin hófst kl. 1 e. h. með
helgistund, er vígslubiskupinn sr.
Pétur Sigurgeirsson á Akureyri annað-
ist. Slðan var leikritið Jón Arason,
eftir sr. Matthías Jochumsson flutt
undir beru lofti heima á staðnum af
leikurum Þjóðleikhússins með aðstoð
Skagfirsku söngsveitarinnar og bcenda
úr Hjaltadal og Óslandshlíð, er fóru
með hlutverk hermanna og biskups-
sveina, en mörg atriði leikritsins voru
sýnd í sínu rétta umhverfi. Mun fáum
er viðstaddir voru, líða úr minni hinn
áhrifamikli leikur og sá helgiblœr er
ríkti á staðnum við þessa sérstœðu
leiksýningu.
Um kl. 3.30 e. h. var klukkum Dóm-
kirkjunnar hringt og gengu prestar
Hólastifts, ásamt vígslubiskupi til
kirkju. Prédikun flutti sr. Árni Sigurðs-
son, form. Hólafélagsins, en prestarn-
ir sr. Sigfús J. Árnason á Miklabœ
og sr. Ágúst Sigurðsson á Mcelifelli
þjónuðu fyrir altari, ásamt vígslubisk-
upi. Guðþjónustunni lauk með altaris-
göngu. Kirkjukór Sauðárkróks annað-
ist söng, undir stjórn Jóns Björnssonar
organista.
Síðan fór fram afhjúpun minnis-
varða Guðmundar góða Hólabiskups
heima á staðnum. Vígslubiskup flutti
ávarp og blessunarorð, en Emma
Hansen, prófastsfrú á Hólum afhjúp-
aði styttuna og flutti kvœði sitt um
Guðmund góða Hólabiskup. Guð-
mundur Jónsson, garðyrkjumaður, er
átt hafði frumkvceði að því að styttan
var reist, flutti að lokum þakkarorð.
Styttan er eftir Gunnfríði Jónsdóttur.
Eins og áður er sagt, hvíldi mikill
helgiblcer yfir Hólastað þennan sögu-
lega dag. Talið er að um 5. þús-
manns hafi komið heim á staðinn og
tekið þátt í hátíðarhöldunum í fe9'
ursta veðri sumarsins, en þennan dag
komst hitinn upp í 25 stig á C. og
talið er, að hann sé með heitustu dög
um, er koma þar nyrðra.
Aldarminning
sr. Jónmundar Halldórssonar
Sunnudaginn 7. júlí s. I. gekkst Grunn
víkingafélagið á ísafirði fyrir messu
ferð til Grunnavíkur, til þess að minn
ast þess, að 100 ár voru liðin frá f®
ingu sr. Jónmundar Halldórssonar, er
fceddur var 4. júlí 1874, að óöt^
húsum á Akranesi, en sr. Jónmun
þjónaði Staðarprestakalli í
vík, á árunum 1918—1954.
170