Kirkjuritið - 01.06.1974, Side 94

Kirkjuritið - 01.06.1974, Side 94
byterar" hafi verið tilnefndir alls stað- ar. Heitið „biskup" og „presbyter" var hœgt að hafa um sama manninn eða menn með sömu eða líka þjónustu. Rétt eins og ritsafn Nýjatestamentisins var ekki fullkomlega mótað fyrr en ó ofanverðri annarri öld, þannig þurfti og lengri tíma en postulatímabilið til fullmótunar hinna þriggja embœtta kirkjunnar, biskups, prests, og djókna. En eftir þennan mótunartíma urðu þessi þrjú embœtti almenn í kirkjunni. 7 Vígsluembœttin Hið kristna samfélag lifir til þess að gefa Guði dýrðina með því að fram- kvœma tilgang Föðurins. Allir kristnir menn eru kallaðir til þess að þjóna þessum tilgangi með bœnalífi sínu, í undirgefni sinni við nóð Guðs og með þjónustu sinni við þarfir mannanna. Þeir eiga að vitna um þá umhyggju, sem Guð ber fyrir öllu mannkyni og um réttlcetið, sem ríkja skal manna á meðal. Þeir skulu gefa sig Guði i lof- gjörð og tilbeiðslu og þeir skulu neyta krafta sinna til að gjöra mönnum fœrt að hljóta samfélag við lýð Guðs og vera þannig undir valdi kœrleika hans. Takmark þess embœttis, er hlýtur vígslu, er að þjóna þessum almenna prestsdómi allra trúaðra manna. Eins og önnur samfélög manna þarfnast kirkjan sérstaks embœttis til forustu og einingar, sem Heilagur Andi gef- ur í vígsluembœttinu (the ordained ministry). Þetta embœtti tekur á sig ýmsar myndir eftir mismunandi þörf- um þeirra, sem kirkjan vill þjóna. Það er hlutverk hins vígða þjóns (minister) að samrœma starfsemi hins kirkjulega samfélags og efla það, sem er nyt- samt og nauðsynlegt fyrir hlutverk kirkjunnar og líf hennar. Hann skal greina það, sem er af Anda Guðs ' margbreytileik hins kirkjulega lífs og efla eininguna. 8 í Nýjatestamentinu er margskonar ímynd (image) notuð til að lýsa starfi þessa þjóns (minister): Hann er þjónn (servant) bœði Krists og safnaðarins. Sem boðberi og sendimaður, þá er hann fulltrúi Krists með valdi hans og flytur boðskap sáttargjörðarinnar- Sem kennimaður (teacher) útskýrir hann orð Guðs og heimfœrir það til samfélagsins. Sem hirðir annast hann og leiðir hjörð sína. Hann er þjonn (steward), sem aðeins má bera þa^ eitt fram fyrir fjölskyldu Guðs, sem Krists er. Hann á að vera fyrirmyn^ um helgun og umhyggju. 9 Eitt kjarnaatriði hins vígða embœttis (ordained ministry) er ábyrgð þsss a tilsjón (episcope). Þessi ábyrgð felul 1 sér trúmennsku við hina postulleðý trú, tilveru hennar í lífi kirkjunnar 1 nútíðinni og skila henni til kirkji framtíðarinnar. Prestar (presbyters) eru sameinaðir biskupinum í tilsjón hans með kirkjunni í þjónustu orðsins o9 sakramentanna. Þeim er gefið val 188

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.