Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1974, Síða 30

Kirkjuritið - 01.09.1974, Síða 30
Passíusálmarnir mjög persónulegt verk. Þeir tala til þess, sem dýpst er og rótstœðast í eðli mannsins. Þeir tala til mennskunnar í manninum, sýna manninum smœð sína og sekt gagnvart Guði sínum og frelsara og leiða hann á lifandi og áþreifanlegan hátt að þeim viðburði, sem lýst er. Það hefur orðið mörgum íhugunar- efni, hvort ákveðin tengsl og orsaka- samband vœri milli Passíusálmanna og persónulegrar reynslu og þjáning- ar skáldsins. Prófessor Magnús Jóns- son, sem ritaði tvœr bœkur um séra Hallgrím og Passíusálmana, hefur haldið því fram, að tilefni Passíusálm- anna sé vitund skáldsins um holds- veikina og hin djúpa þjáning, sem þvi fylgdi, — að Passíusálmarnir beri vitni um mikla örlagastund og sálar- baráttu. Hann segir, að séra Hall- grímur hafi einmitt árið 1656 orðið þess áskynja, að hann var orðinn holdsveikur. Þá hafi runnið upp fyrir honum það skelfingarauknablik, sem gat skekið þennan rólega mann, er ekki lét sér bregða, þó að eignir hans brynnu til kaldra kola. Örlagastundin er sú andrá, þegar hann sér, að hann er orðinn holdsveikur, sér allt hrynja í rústir og þjáningarferillinn fram und- an. Og þá hafi honum staðið píslar- ferill frelsarans enn þá skýrar fyrir sjónum, þegar hans eigin píslar- og sjúkdómsferill varpar á hann Ijósi veruleikans. Þannig telur prófessor Magnús beint orsakasamband milli holdsveiki skáldsins og sálmanna. Þessari skoðun andmœlir doktor Sigurður Nordal í ágœtri bók sinni um séra Hallgrím og Passíusálmana, sem út kom árið 1970- Telur hann, 220 að holdsveiki séra Hallgríms sé ekki orsök Passíusálmanna, en samt séu þeir sprottnir úr persónulegri reynslu skáldsins, sálarstríði hans og innri átökum, trúarbaráttu hans og trúar- lífi. Það mœlir gegn skoðun prófessors Magnúsar Jónssonar, að vitað er með öruggri vissu, að séra Hallgrímur var við allgóða heilsu í nokkur ár, eftir að hann lauk við Passíusálmana, svo að ólíklegt verður að telja; að holds- veikin hafi þjáð hann þau árin, sem hann var að yrkja þá. Þess má geta, að þremur árum eftir að séra Hallgrímur lauk sálmunum, eða árið 1662, brann bœrinn í Saur- bœ, og var hann þá við góða heilsu og gekk að heyskap með fólki sínu. Sama sumar er hann viðstaddur Kópavogseiðinn. Og veturinn eftir fer hann austur að Skálholti samkvœmt beiðni velgjörðarmanns síns Bryn- jólfs biskups til þess að flytja Ragn' heiði trúarstyrk og huggun, þar sem hún liggur banaleguna og er að deyja úr berklum. Segir það sína sögu um hœfileika hans sem huggara og sálu- sorgara. Það var við jarðarför hennar, sem sálmurinn ,,Allt eins og blómstrið eina" var sunginn fyrsta sinni. Ö9 síðan hefur hann verið sunginn °ð einhverju leyti í nœstum því hven einasta sinn, sem líkami látins ls' lendings hefur verið lagður að móð- urskauti. Er það einsdœmi í kristm- sögu heimsins, að sami sálmur se sunginn öldum saman við allar jarðar farir meðal sömu þjóðarinnar. í framhaldi af því, sem þegar he ur verið sagt um tilefni og ors° sálmanna, vil ég láta í Ijósi þá s^0
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.