Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1974, Page 52

Kirkjuritið - 01.09.1974, Page 52
íslenzkrar þjóðarsögu, þegar hún er metin út fró stjórnmálalegum forsend- um. Og það er staðreynd, að hið danska konungsvald jókst, um leið og hinu innlenda valdi hnignaði, og konungur sló eign sinni á stóran hluta allra jarðeigna á íslandi. Þessa þróun hafa margir viljað skrifa einhliða á reikning siðbótarinnar. Mér virðist það þó vera of einföld sögutúlkun, því að enginn vafi er á því, að konungsvald- ið hefði aukizf og eflzt án áhrifa sið- bótarinnar, þótt konungurinn fœrði sér í nyt hentugt tœkifœri til þess að koma ár sinni fyrir borð. Efling kon- ungsvalds var hafin úti um alla Evrópu fyrir siðbót og hefði haldið áfram, þótt hún hefði ekki komið til. VI. Það var engan veginn nœgjanlegt að brjóta hið rómverska kirkjuvald á bak aftur. Svo sem áður er nefnt var ís- lenzka þjóðin nœsta óviðbúin siðbót- inni og ókunnug kenningum hennar. Það var siðbótinni einnig mikið tjón, að fyrsti lútherski biskupinn, Gizur Einarsson í Skálholti, andaðist aðeins 40 ára að aldri, tveimur árum á undan Jóni biskupi Arasyni. Þar féll frá höf- uðleiðtogi siðbótarinnar, sem helzt gat varið hagsmuni kirkju og þjóðar gagnvart konungsvaldinu. Eftirmenn hans voru ekki jafnokar hans. Enginn vafi leikur á því, að það hafði mót- andi áhrif á siðbótarsögu (slands. Segja má, að siðbótin hafi fyrst veru- lega fest rœtur á íslandi fyrir það starf, sem Guðbrandur biskup Þorláks- son á Hólum vann með bókaútgáfu sinni um og fyrir aldamótin 1600. Hann lauk við þýðingu Biblíunnar á íslenzku og lét prenta hana árið 1584. Hann gaf einnig út sálmabók og grall- arann til notkunar við guðsþjónust- una, auk fjölda annarra bóka. Segjo má, að starf hans hafi haft ómetan- leg áhrif á útbreiðslu kenninga sið- bótarinnar á íslandi. Mig langar til þess að nefna tvo menn frá nœstu öldum, sem höfðu mikil kristileg áhrif. Þeir eru sálmO' skáldið mikla, Hallgrímur Pétursson, og Jón biskup Vídalín ! Skálholti. Eng- in bók á íslandi hefur haft meira gildi fyrir kristnilíf íslenzku þjóðarinn- ar en Passíusálmarnir, sem ortit eru um pínu og dauða frelsarans- Þeir hafa komið út í fleiri útgáfurn en nokkur önnur Islenzk bók, og seg|a má, að margar kynslóðir íslending0 hafi lœrt sálmana utanbókar. Enn eru þeir lesnir í Ríkisútvarpinu á föstunni- Jón Vídalín var biskup í Skálholti- Hann var rœðusnillingur fylgian^' rétttrúnaðarstefnunni. Húslestrarbók hans kom út í mörgum útgáfum °9 var lesin af allri íslenzku þjóðinni 1 meira en heila öld. Enn eru rœðu' hans taldar vera perlur að málf0^' og mœlsku til, þó að þœr þyki f°rn’ legar að vonum. Á átjándu öld bárust áhrif pietis^ ans út hingað, er Ludvig Harboe, sl ^ ar Sjálandsbiskup, kom til íslands þess að kanna ástandið í íslenz^u kirkjunni. Hann dvaldist hérlendis un1 nokkur ár og aflaði sér trausts og v,n sœlda með mildri framkomu s'nrig Hann reyndi að verða íslandi a gagni, en pietisminn sjálfur ha aldrei mikil áhrif hér. 242

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.