Kirkjuritið - 01.12.1977, Page 60

Kirkjuritið - 01.12.1977, Page 60
Orðabelgur Leikir og lærðir Nokkuð er nú um liðið, frá því síðast var lagt orð í belg. Þá var „Álit starfs- háttanefndar þjóðkirkjunnar" til um- ræðu og biskupamálið. Nú skal víkja fáeinum orðum að öðru máli, sem ofarlega er á baugi í Álitinu. Þar er mjög auðsæ viðleitnin til þess að auka hlut leikmanna í hefðbundnu og skipulegu starfi þjóðkirkjunnar, svo og ábyrgð þeirra. Hér er mikil þörf rækilegrar yfir- vegunar og umræðu. Stöku sinnum heyrast raddir um, að hér á landi sé þjóðkirkjan einungis prestakirkja, hún sé ekkert nema prestarnir. Þær eru réttmætar um of, en koma gjarna úr hörðustu átt, en ekki frá þeim, sem gerst mega vita og skilja. Þar er því hætta á ferðum. Reginmisskilnings gætir þar gjarna og hreinnar van- þekkingar. Dæmi slíks eru mörg og auðfundin: Fyrir nokkrum árum átti hópur unglinga orðastað við prest um trúar- atriði. Þegar Ijóst varð, að skoðanir skiptust milli prestsins og sumra úr hópnum, spurði sá, er helzt hafði orð fyrir flokknum, af nokkurri heift og fyrirlitningu, hvað kæmi til þess, að prestar teldu sig eina hafa alla þekk- ingu og allt vald um trúna og kenn inguna. Áþekk viðhorf til presta og kenr1 ingarinnar skjóta öðru hvoru up, kollinum í dagblöðum, ekki sízt .{j skrifum blaðamanna. Þess 9 mjög í umræðum vegna samþy^.g prestastefnunnar í Skálholti 1975. Sömu viðhorf ráða og atst°iai fjölda manna, meira að segja pr.efla- að því, er virðist, til prestskosnin9 298

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.