Syrpa - 01.04.1917, Side 16

Syrpa - 01.04.1917, Side 16
14 SYRPA, 1.HEFTI 1917 SMiferð til íslands árið 1845. (Niðurlag'). hafa hug til þess að komast upp á klettinn. Ofan á klettinum er mjúkur og heitur leir, blandaður sandi og smásteinum. Eg var hálfhrædd um, að eg mundi þá og þegar sökkva niður í eitthvert sjóð- andi hyldýpi, því við hvert spor lét leirieðjan undan fæti. Presturinn gekk á undan og þreifaöi fyrir sér með staf sínum ; eg fylgdi honum fast á eftir, og innan lítillar stundar stóðum við fram á brúninni, þar sem við gátum séð yfir alla sextán hverana í einu. Það var töfrandi sjón að horfa niöur á allar þessar hejtu vatnsuppsprettur. Eg gleymdi allri hræðslu og stóð þarna undr- andi, játandi með sjálfri mér, að mikil væru verkin skaparans. Eftir hans boði hafði vatnið brotist fram úr fangelsi sínu í iðrum jarðarinnar; og þarna sauð það og vall stundar- korn í hveraskálunum, og rann síð- an burt í ána. Förunautur minn varð að minna mig oftar en einu sinni á hættuna, sem við vorum stödd í. Eg hafði gleymt henni, og stóð þarna, þar til gufumökkurinn vafðist utan um oklcur og ætlaði að kæfa okkur. Loks snerum við við og yfirgáfum þennan blett, þar sem við hefðum ekki getað staðið svona léngi, ef hveragufan hefði verið blándip brennisteinssvaskju til muna. Grjótið umhverfis hverina er rauð- leitt á lit, og steinarnir á árbotnin- nm, þar sem vatnið úr hverunum rennur í hana, eru líka rauðir. Mér var fylgt að hver skamt frá kirkjunni í Reykholti, senj var um- girtur á allar hliðar með grjótgarði, svo að skepnur, sem eru mjög sólgn- ar í grasið kringum hann, skyldu ekki brenna sig. Hér um bil átta- tíu skref frá þessum hver er laug Snorra Sturlusonar. Laugin er kringlótt, hér um bil þriggja til fjögra feta djúp og tuttugu feta breið ; nokkrar tröppur liggja niður í botninn á lauginni, og lág stein- sæti eru umhverfis hana alla. Vatn- ið úr hvernum er of heitt og er það blandað köldu vatni. Engin merki sjást þess nú, að þak hafi nokkurn tíma verið yfir lauginni, og er hún nú ekki notuð til annars en að þvo u 11 og föt úr henni. “Á leiðinni til baka sýndi prest- urinn mér kirkjugarðinn. í hon- um eru grafir ýmsra merkra manna. Var það alt mjög fræðandi, en ekki sem skemtilegast fyrir mig, þegar eg fór að hugsa um það, að næstu nótt yrði eg að sofa í kirkjunni al- ein innan um alla hina dauðu, “Beint fram undan kirkjudyrun- um er gröf hins nafnkenda Snorra Sturlusonar. Mjó hella, jafn löng

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.