Syrpa - 01.04.1917, Page 20

Syrpa - 01.04.1917, Page 20
18 SYRPA, 1. HEFTI 1917 Þeir \irtust halda, aö í öðrurn lönd- um sé kvenfólk eins vel mentað og karlmenn. Prestarnir spurðu mig æfinlega að því, hvort eg kynni latínu, og voru forviða, þegar eg sagði þeint blátt áfram að eg kynni hana ekki. Alþýðufólk spurði mig ráða við öllum mögtilegum sjúk- dómu'm ; á einum bte var mér sýnd- ur holdsveikur maður, og eg beðin að segja hværnig ætti að fara að lækna hann”. Þótt frúnni fyndist íslendingum vera ábótavant í þrifnaði og dugn- aði, hrósar hún þeim mjög fyrir námfýsi og mentun. Á fiestum bæjum segist hún hafa fundið all- margar bækur, og voru sumar þeirra oft á útlendum málum. Seg- ir hún að margir alþýðumenn ' séu vel mentaðir, og þá náttúrlega skólameritaðir menn, en af þeim kyntist hún fáum, nema nokkrum prestum. Að heldra fólkinu í Reykjavík geðjaðist henni fremur illa, þótti það ekki sýna sér nógu rhikla virðingu. Segir hún frá skemtiför upp í Moslellssveit, sem hún var í. Var franska töluð af nokkrum, sem hana kunnu, en hún gaf sig ekkert inn í samræðurnar, þótt hún skildi alt. Var þá ekki trútt um að sumir hæddust að henni fyrir þátttökuleysi hennar í sam- ræðunum ; segir hún að sér hafi verið líkt við þögula ges'tinn í Don Juan. En spaugið hafði engin á- hrif á hana, því hún var sokkin nið- ur í að hugleiða efni, sem voru langt fyrir ofan skilning samferðá- fólksins. Ymsu fólki í Reykjavík ber hún samt mjög vel söguna, svo sem Bernhöft bakara, er hún dvaldi hjá, og gat talað þýzku við, og Thomsen kaupmanni, sem bauð henni að vera með í nokkrum smá- skemtiferðum. Verst af öllum geðj- aðist henni að konu stiftamtmanns- ins. Hún heimsótli hana einu sinni og afréð með sjálfri sér, að troða henni ekki oftar um tær eftir við- tökurnar, sem hún fékk. Margt hefir breyzt á íslandi á sjötíu árum. Og ekki hefir síður breyzt álit og untsagnir útlendra ferðamanua, sem heimsækja landið. Það er til dæmis afarmikill munur á lýsingum frú Pfeiffer, þótt þær séu óvíða óvingjarnlegar, og því sem Russell segir í hinni ágætu bók sinni “Through Iceland on Horse- back”. Skilningurinn er allur dýpri og samúðin til þjóðarinnar langtum meiri. Utlenda þröngsýnið hefir horíið við nánari kynni og einlæga viðlcitni að skilja orsakir þess ein- kennilega, sem fyrir augu ber. 'HiÉair'

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.