Syrpa - 01.04.1917, Blaðsíða 26
24
SYRPA, ]. HEKTl 1917
Af því sumir af þessum bæjum
veröa hér síðar nefndir, eru þeir hér
taldir í röö, svo að hægra sé að átta
sigf á því, sem síðar verður frá sagft.
Ætt Halls í Tungu
og afkomendur.
Hallur í Tungu mun hafa verið
Jónsson, hvergi hefi eg getað séð í
Sýslumannaæfum, rakta fram ætt
hans. Kona hans hét Guðrún Páls-
dóttir, svarri milcill og stórgeðja.
Kom það fyrir að hún hljóp frá
Halli þegar óstillingarköstin gripu
hana, og verður síðar minst á það.
Börn ftttu þau 5 eða 6, og skulu
þau hér nefnd :
I. Engilbert, tvígiftur, átti mörg
börn, eitt þeirra Rebekka, er
fttti Hafliða Árnáson, föðurbróð-
ur þess er þetta ritar, fór hann
til Ameríku og dó eftir stutta
veru þar 1888 (?) í Nýja ís-
landi. Rebekka er enn ft lífi í
Selkirk, háöldruð og orðin blind,
eru 2 synir hennar þar, Árni og
Líkafrón; mun hún hafa heimili
hjá þei'm fyrnefnda.
. 2. Bjarni Hallsson giftist og atti
börn.
3. Jón Hallsson (launsonur Halls)
giftist, en átti engin börn ; sá,
■ sem þetta ritar, sft Jón þegar
hann var aldraður maður, var
hann ákaflega skreflangur, með
miklar herðar, karlmannlegur á
fæti og þó hrikalegur, var hann
lengi í húsmensku og kynti sig
vel.
4. Bjarni, sem nautið varð að bana,
10 ára gamall.
5. Rebekkg Hallsdóttir, átti Gtið-
mund Egilsson frá Laugalandi í
Skjaldfannadal, hinn mesti mynd
armaður, fríður sínum og karl-
mannlegur, með glóbjart hftr
ofan ft herðar, þau bjuggu
þar góðu búi. Rebekka var
gæðakona mikil, orðlögð þar
í sveitinni fyrir gjafmildi og
greiðasemi, en hafði þó alt af
gnægð í búi ; lét maður hennar
sér ffttt um finnast, en skifti sér
þó ekki af. Börn ftttu þau þrjú.
1. Guðmund, er giftist og átti
mörg bðrn; 2. Egill, er giftist og
átti börn. Var hann hreppstjóri
nokkur ár, stór og hrikalegur
maður, taldi hann sig afkom-
anda Egils Skallagrímssonar ;
hann gat hleypt brúnum upp og
ofan eins og Egill forfaðir hans
gerði, eftir því sem segir í Egils
sögu. 3. barn Guðm. og Re-
bekku hét Sigríður, hin mesta
fríðleiks og myndarstúlka, hana
átti Guðmundur Bárðarson á
Eyri í Seyðisfiiði; mesti mynd-
ar og ríkismaður, einn af
merkustu bændum þar í sveit.
Þrjú börn áttu þau. Eitt þeirra
var Jón Guðnnindsson, kaup-
maður í Eyrardal. Var hatin
lengi fiskimatsmaður á ísafirði.
6. Engilráð Hallsdóttir, átri Jón
Jónsson frft Skjaldfönn; bjuggu
þau í Tungu eftir Hall og átlu
tvö börn; 1. Jóhannes, er giftist,
en átti engin börn; 2. Hallfríður,
fttti Kristján Fransson, sem
einnig bjó í Tungu eftir lát íöður
hennar. Dó Hallfríður frá mörg-
um börnum, og þeim ungum.
Eitt af börnum Kristjftns og
Hallfríðar er Helga kona Sum-
arliða gullsmiðs Sumarliðasonar.
hin mesta myndar og rausnar-