Syrpa - 01.04.1917, Side 31
YRPA. 1. HEFTI 1917 29
giftist Kristjáni; var þá sjálf milli
æsku og fullorðins ára. Þótti hún
levsa stjúpmóður störfin frábærlega
vel af hendi, enda fjölgaöi hjft henni
börnunum eftir að hún giftist.
Kristján mun hafa átt um 20 börn
með konum sínum. Eitt sinn er
Þorgerður var að fjölga fjölskyldu
sinni, dreymir hana Markús gamla
á Nauteyri, var hann þft dáinn fyrir
nokkurum árum, biður hann hana
að lofa sér að vera hjá henni, þykist
hún lofa því, Eftir nokkurn tíma
elur hún son, og er hann skírður
Markús Kristján. Ólst hann upp í
foreldra húsum og var hinn mann-
vænlegasti, gftfuður og fríður sýn-
um, og í mörgu mjög líkur móður
sinni. Þegar hann hafði aldur til,
fór hann á búnaðarskólann í Ólafs-
dal til Torfa Bjarnasonar; mun hann
hafa verið þar tvö ftr. Torfi sá strax
að Markús hafði mikla og góða hæfi-
leika, og var mér sagt að honum
hefði þótt vænst um hann af þeim
pilturn, sem þar voru þá, fanst hon-
um mikið um gáfur hans og hvatti
hann til að ganga mentaveginn, og
mun hafa lofað honum hjálp. Var
og altalað, að Markús og Ingibjörg
Torfadóttir væru trúlofuð sín á milli.
Næsta vetur á eftir fór Markús að
Melgraseyri til síra Eyjólfs Jónsson-
ar, sem þft var prestur í Kirkjubóls-
þingum, og lærði hjá honurn undir
skóla. Sagði síra Eyjólfur svo frá
síðar, að hann hefði lært það á ein-
um vetri, sem aðrir mundu hafa
þurft tvo vetur til. Síðan fór hann
á mentaskólann í Reykjavík, og
minnir mig það væri veturinn 1880
heldur en '82. Nokkuru eftir að
hann kom í skóla, veiktist hann, og
var dftinn fyrir jól úr brjóstveiki.
Var það að orði haft, að hann helði
lagt ©f hart að sér nftmið,
Þorsteinn Erlingsson orti saknað-
arljóð eftir Markús undir nafni stú-
denta, er byrja þannig :
“Er ekki von vor hópur standi
hljóður ?“
Ekki verður hér lýst hinum sára
söktiuði foreldratina í Tungu, en
mjög óvíst, hvort söknuðurinn hefir
veriö meiri þar en í Ólafsdal Um
þær mundir eða eftir það, eignuðust
þatt Ólafsdalshjón son, sem heit-
ir Markús — Markús Torfason í
Ólafsdal.—Er þar aftur komið rtafn-
ið, Markús Torfason, setn var ft
Nauteyri.
Á. J.