Syrpa - 01.04.1917, Side 32

Syrpa - 01.04.1917, Side 32
30 SYRPA, 1, HEFTI 1917 Vopnaðir munkar gæta dýrmætra fornmenja r QTTí viS stríó, sem liggur eins og mara á munkunum á Athos-f jalli, hefir knúS þá til aS senda tvo af forsetum sínum, sem eru fjórir alls, til Aþenuborgar í því skyni aS skýra sendiherra Rússa þar frá hættunni, sem þeir eru í. Athos er hér um bil 80 mílur frá Saloniki. Engum kvenma.nni, og engu kvenkyns, jafnvel ekki kú eSa hænu, er íeyft aS stíga fæti á hiS helga fja.ll. En aftur á móti er Erisso, sem er ekki nema steinsnar frá takmörkum hins helga staSar, karlmannalaus Paradís, aó kalla má ; þar býr eintómt kvenfólk, flest eitthvaS skylt munkunum. Sendimenn- irnir til Aþenuborgar biSja einnig um vernd fyrir Erisso. Þeir á Athos fjalli vita vel hvaS stríS eru. Þess vegna eru háir og ramgervir veggir umhverfis klaustrin, sem gefa þeim svipaS útlit og köstulum frá miSöldun- um ; varSturnar og fallbyssu- kjaftar, sem gægjast út úr vín- viSarflækjunum á veggjunum gera þau enn þá líkarí þess konar byggingu. Munkarnir börSust, en voru yfirunnir í frelsistríSi Grikkja snemma á 19. öldinni. Á miSöldunum urSu þeir stöðugt fyrir árásum frá Serkjum, og nú á tímum verSa þeir oft fyrir heimsóknum ræningjaflokka, sem alt er fult af þar í kring. Á fjallinu eru tuttugu klaustur ogkapellur, og eru þar geymd rnörg einkennileg listaverk og dýrmætar fornmenjar, svo sem belti Maríu meyjar, sem Tómas á að hafa gefiS henni og flísar úr krossi Krists ; og er þaS trú manna aS lækningakraftur fylgi munum þessum. HöfuS sánkti Jóhannesar (gullmunns) hvílir þar í fögru skríni: “Af vörum hans streynrdi mælska, sem var sætari en hunang og kröftugri en herskarar. ” Bikar- ar, patínur og reykelsisker úr gulli alsett dýrum gimsteinum, eru þar mörg og mjög verSmæt; ennfremúr eru þar mörg ker úr slegnu silfri, leyfar af fornri bý- antínskri silfursmíS, er hún var á sínu hæsta stigi. Munkarnir hafa grun um aS

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.