Syrpa - 01.04.1917, Side 76

Syrpa - 01.04.1917, Side 76
74 SYRPA, 1, H£FTI 1917 upp ))aö sem hann fann ætilegt, rétt viö nefiö á henni, og geta þá ekki náö í hann. Þennan leik léku þau dag eftir lag, og þaö var eins og tóa meÖ öllu sinu viti gæti þó aldrei trúaö því, aö sér væri fyrirmunaö að ná í óvininn Annars sýndu yrðlingarnir ])aö oft, að þeim var ekki í ætt skotið um vit og kænsku. Þó bar einn af ölluir. sem Egill hefir haft á fóstri. Það var stór refur og efnilegur. Lítilli stundu eftir að Egill hafði tjóðrað hann, svo sem fyr er sagt, sá hann að hann var orðinn laus. Eg- ill náði honum samt fljótt, því að hann dró járnfestina. Egill skildi ekki í hvernig hann hefði farið að losa sig, því að festin var heil og hólkurinn á endanum; og járnteinn- inn stóð með ummerkjum, sem hólk- inum hafði verið smokkað á. Egill smeygði nú hólkinum aftur á teininn og gekk svo burt, eins og hann ætl- aði heim, en lagðist milli þúfna, til ])ess að sjá hvað litli refurinn tæki til hragðs. Rétt hjá tjóðurhælnum var garðbrot lítið, álíka hátt og hæll- inn stóð upp úr jörð. Þegar Egili var horfinn hleypur rebbi upp á garðbrotið og hoppar í loft upp eins hátt og hann getur, og nær með þvi móti hólknum upp af teininum, og er nú laus. En sú lausn var ekki til lengdar; Egill kom og smeygði aftur hólknum á teininn og batt svo um snæri fyrir ofan, til þess að hólkur- inn gengi ekki upp af. Síðan felur hann sig aftur. Jafnskjótt sem hann var horfinn, hleypur rebbi litli upp á garðinn og hoppar og hoppar eins og áður, en nú nam -hólkurinn við snærishnútinn og gekk ekki lengra. Þetta þykir rebba kynlegt, hættir hoppinu og horfir á hnútinn um liríð; hleypur svo ofan af garðinum, klórar sig upp eftir teininum og nag- ar burt snærið, hleypur síðan aftur upp á garðinn og hoppar hátt í loft; var nú ekkert til fyrirstöðu, og losn— ar hnnn enn í þriðja sinn. En það kom fyrir ekki. Hann aftur festur við tjóðurhælinn jafnharðan, og nú vafði Egill járnvír um teininn; á lionum gat litla greyið ekki unnið og var nú alveg ráðalaus. Hann varð aldrei framar frjáls,—sem betur fór, munu bændur segja,—því að sá mundi hafa orðið þeim óþarfur, ef hann hefði orðið frjáls og fullorðinn fjallaref- ur; má nærri geta að svo bráðgáfað- ur unglingur hefði ekki orðið hvers manns leika, er aldur og lífsreynsla færðist yfir hann. En til þess kom ekki. Hann lifði ekki nema til næsta þorra, þá varð hann að gjalda fóst- urlaunin með því eina sem hann átti og af honum var að hafa, skinninu sinu mjúka og hlýja. Einhver Englend- ingur keypti það svo sumarið eftir fyrir 30 kr, og skartar ]jað nú lík- lega á enskri stássmey, sem lítt renn- ir grun í, hvílíka ráðkænsku og frelsisþrá belgurinn sá hafði að ‘ geyma meðan hann fylgdi búknum.

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.