Syrpa - 01.01.1922, Síða 82

Syrpa - 01.01.1922, Síða 82
80 SYRPA Ferdinand Magellan, portúgalskur maöur, lét hafiö fyrstur manna kili plægt og fann um leiö vesturveginn til Indlands. Hann var geröur út til þess af Karli V. Spánarkonungi áriö 1519. Til far- arinnar haföi hann ekkert skárri skip heldur en Kólumbus hafði haft, og svipuð áhöld og hann haföi til aö rata leið sina. Hann sigldi suöur meö strönd Suðurameríku og krækti inn i ihverja vík til aö leita aö sundi, er hann gæti komizt um suöur um landiö. Hiann kom aö lokum i sumarbyrjun (21. oktj i sundiö, sem heit- ir eftir honum, Magellansund, og sigldi vestur þaö. Honum sótt- ist siglingin seint vestur sundiö, bæði sakir fjúka, grenjandi storma og breytilegra sjávarfalla. Eitt af skipum hans hvarf þar frá honurn. Á 38 dögum kornst hann vestur af sundinu, sem er 3Ó0 mílur á lengd, og sigldi út á ókannaðan rúinsjó fram hjá Deseado- núp 28. nóv. Magellan nefndi hafið Kyrrahafiö, af því að hann skreið vestur þaö fyrir hægum byr í samfleytt 98 daga. Á þeirri leið gengu vistir upp fyrir skipVerjum, og komust þeir loks i marz- mánuöi í Ladroneyjar, nær dauða en lífi af skyrbjúg og hungri. Þar fengu þeir nýjar vistir og vatn og héldu þaðan til Filippseyjæ Magellan lenti þar í ófriði við eyjaskeggja og féll í honum. Juail Sebastian del Cano, skipstjóri Victoria, tók þá viö forustunni, sigldi vestur til Indlands og þaðan heim fyrir Góörar vonar höföa til Spánar. Honum var tekiö þar með hinum mesta fögnuði og viðhöfn; sleginn minnispeningur um förina og á honum nafn hans og mynd, en hinu megin jörðin í konulíki og umhverfis: Primus mc circumdcdisti fFyrstur fórst þú kring um migj. Þegar Se- bastian del Cano kom heim, var hann heilum degi á eftir i dagatali sínu við þaö, sem talið var á Spáni. Þóttust menn vita, aö þeir skipverjar mundu gleymt hafa aö geta einhvers dags í dagbók sinni. En þaö var þó ekki, heldur hitt, aö þeim haföi áskotnast einn dag- ur fyrir að sigla með sólu. Francis Drake var fyrstur Breta til aö sigla kring um jörðina 1577 á skipinu Gullna Hindin, og var hann gerður aöalsmaður af Elizabetu Englandsdrotningu fvrir þaö. Með þessu var landa- fundum lokiö og sæleiðir á komnar um öll höf jarðar, sem þýö- ingu hafa fyrir verzlun og viðskifti. Eftir var ókannað íshöfin og heimskautalöndin, er að þeim liggja. Af heimskautaförum fyrri alda eru nafnkunnastir Jolin Davis, sem fann Davissund inn i Baffin flóann, og Henry Hudson, sem fann Hudsonsflóa 1610. Skipa- gerð og siglingaverkfæra fór þó ekki mikið fram um þetta skeiö og fengna þekkingu á höfunum eiga menn að þakka dugnaöi og á- ræöi farmannanna miklu meir en því, aö úbbúnaður væri við hæfi fyrirtækjanna. Skip landkönnunarmanna á 17. öld voru, er óhætt aö segja, nokkuö áþekk og skipið Royal Sovereign, sem bygt var 1637 á Englandi. Þaö var þrímastrað, meö siglurööum, toppsegl- um, stórtoppseglum og stórseglum á fram- og aðalsiglu, og þríhyrnu og ferseglum á efri siglu, og tvö ferhyrnusegl á bugspjóti. Undir framþiljum var lúkar þvert yfir skipiö og háar afturþiljur. Þetta skipalag hélzt nærri út 17. öldina. Á fyrri helming 18. aldar varð l'.ngspjótiö reglulegt bugspjót og þá kom fokkan til sögunnar. Járnskip tóku að tíðkast eftir 1818. Þá var fyrsta járnskip gert
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.