Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Blaðsíða 28
14 ÞORSTEINN Þ. ÞORSTEINSSON, RITHOFUNDUR N. Kv. að flest var honum vel gefið, það er honum mátti sjálfrátt vera. Fjórða barn þeirra Ytri- Másstaðahjóna var Þorsteinn „smiður“. Hann lauk ungur smíðanámi hjá Ólafi Briem á Grund í Eyjafirði. Kvæntist Jór- unni Bjarnadóttur Thorarensen, systur séra Jóns Bjarnasonar Thorarensen prests á Tjörn í Svarfaðardal. Þau Þorsteinn og Jór- unn bjuggu lengst á Ufsum á Ufsaströnd, eða frá 1854—1870. Því er það, að Þor- steinn „smiður“ hefur stundum verið nefnd- ur „Þorsteinn frá Ufsum“. Meðal barna þeirra var Freyja kona Antons bónda á Hamri Árnasonar læknis og bónda s. st. Árnasonar. Var Freyja á blómaskeiði æv- innar og langt á aldur fram ein með glæsi- legustu konum í Svarfaðardal. Orð fór af því, að heldur félli stirt með þeim Þor- steini „smið“ og Jórunni og ekki yrðu þau samþykk að hverju ráði. Er mér með öllu ókunnugt um, hvað valdið hefur, og er það hald mitt, að skilin væru þau að samvistum, þegar Þorsteinn átti Þorstein Þ. Þorsteins- son við Aldísi Eiríksdóttur. Þorsteinn „smiður“ vann oft og löngum að trésmíðum í Svarfaðardal og víðar og þótti vandvirkur og vel að sér í þeirri iðn- grein. Mun hafa snemma verið kenndur við iðn sína og ætíð verið nefndur Þorsteinn „smiður“ eða Þorsteinn frá Ufsum. Þá var og Þorsteinn bókgefinn greindar- maður, og talsverðan alþýðlegan fróðleik eftir hann mun að finna í Landsbókasafn- inu í Reykjavík og ef til vill víðar. Að öllu samanlögðu mun Þorsteinn hafa verið hæfileika og atgervismaður meira en í meðallagi og bæði til munns og handa. Hann hvarf aldraður héðan af landi á brott vestur um haf til Ameríku og dvaldi þar til æviloka. Eg hefi hér að framan gert nokkra grein fyrir foreldrum Þorsteins Þ. Þorsteinsson- ar. Nefnt nokkra ættmenn hans og frændur, dvalarstaði og ævistörf. Vikið á stölcu stað að skapgerð þeirra og hneigðum, og ef at- hygli er beitt aðeins lítilsháttar, keinur í Ijós, að með þeim býr mörgum rannsóknar- eðli og listakennd. Flestir þeirra eru bænd- ur og húsfreyjur í einhverri sveit og mjög svo háðir öðrum verkefnum en þeim, er gjarnast lyfta mannsandanum á bak róman- lískri gandreið, er flughröð svífur ofai' jarðlægri tilveru álþýðumannsins. Þó hafa sumir þeirra megnað að yrkja vel kveðnar vísur og Ijóð, er enn geymast í bókum og á vörum manna. Aðrir skrifa sagnir og um viðburði frá liðnum árum og öldurn. Og enn aðrir telgja viðu og reisa hús, smíða úr járni og kopar þarflega og snoturlega muni. Nokkrir þeirra frænda hverfa vestur um haf í leit að þekkingu og fjármunum um víð- erni Vínlands hins góða, en þeir gleymdu ekki æskudalnum og árstíð nóttleysunnar í norðrinu. Og þegar um hægðist og baráttu- kjarkurinn hafði fært þá til sigurs, minnt^ ust þeir hinna fornu kynna, heimsóttu land- ið sitt, ættingja og vini. Fjáðari en íyrrum og með þroskaðri menningarvilja komu þeir færandi hendi heim í sína ættarsveit. Lögðu grundvöllinn meðal annars að nýrri öld, nýjum skjólsælum gróðri, þar sem menningin mundi síðar glæðast og leita sér staðar í „lundum nýrra skóga“. Forfeður og frændur Þorsteins Þ. Þor- steinssonar hafa í ættir aftur og til beggja lianda sýnt, að þeir voru og eru drenglund- aðir menn og ræktarsamir og heiman og heirna góðir íslendingar. FÓSTURSONURINN. Þá var Þorsteinn Þ. Þorsteinsson á öðru aldursári, er faðii hans, Þorsteinn „smið- ur“, kom hinum unga syni sínum í fóstur til hjónanna á Syðra-Hvarfi, Jóns Kristjáns-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.