Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Side 52
38
SKÁKÞÁTTUR
N. Kv.
og blindskákir, en hann hafði um tíma
heimsmet í blindskák.
Alekhine tefldi tvisvar um heimsmeist-
aratitilinn við landa sinn E. D. Bogoljubow
og sigraði auðveldlega í bæði skiptin. En
árið 1935 var stofnað til einvígis milli
hans og hollenzka stórmeistarans dr. Max
Euwe. Hann hafði teflt ágætlega undanfar-
in ár, en var þó engan veginn talinn jafnoki
Alekhines. Talið er, að Alekhine hafi bú-
izt við auðveldum sigri, en það fór á aðra
leið, því að Euwe sigraði með 15V2 vinn-
ingi gegn 141/2- Euwe hélt þó heimsmeist-
aratigninni aðeins í 2 ár, því að hann sýndi
þá háttvísi, að gefa Alekhine kost á öðru
einvígi árið 1937. Þetta einvígi var mjög
vel teflt, og Alekhine sýndi nú, hvers hann
var megnugur og sigraði með 15% vinn-
ingi gegn 9%. Dr. Euwe kom til Reykja-
víkur árið 1947 og tefldi þar í skákmóti
og varð efstur sem vænta mátti.
Alekhine var nú aftur orðinn heims-
meistari og hélt þeirri tign til dauðadags
árið 1946. Þegar hér var komið, var Al-
þjóðaskáksambandið farið að hafa afskipti
af þessum málum. Árið 1937 ákvað það,
að Alekhine skyldi tefla við Salo Flohr, þó
að flestir teldu, að Capablanca ætti þar
réttinn öðrum fremur. Af þessu varð þó
ekki, en árið 1946 var ákveðið, að Alek-
iiine tefldi við Botvinnik núverandi heims-
r
meistara. Aður en það gæti orðið dó Alek-
hine og kom þá til kasta Alþjóðaskáksam-
bandsins að ákveða, hvernig farið skyldi
með heimsmeistaratignina. Það ákvað, að
6 stórmeistarar skyldu tefla saman á skák-
móti og sigurvegarinn teldist heimsmeist-
ari. Þessir menn voru M. Euwe, Eistlend-
ingurinn Paul Keres, Rússarnir Botvinnik
og Smyslov og Bandaríkjamennirnir S.
Resewsky og R. Fine. Fine dró sig þó í hlé,
svo að þeir urðu aðeins 5. Skákmót þetta
fór fram árið 1948, fyrri hlutinn í Hol-
landi og seinni hlutinn í Moskvu. Botvinnik
sigraði eins og flestir bjuggust við. Hann
hefir verið heimsmeistari síðan og er af
flestum talinn sterkasti skákmaður, sem nú
er uppi. Hann hefir háð 2 einvígi við landa
sína D. Bronstein og Smyslov, og hafa
keppendur skilið jafnir í bæði skiptin.
Þriðja einvígið stendur nú fyrir dyrum, en
það fer fram eins og áður er sagt í þess-
um mánuði. Engu skal spáð um úrslit þess,
en margir telja Smyslov nú standa jafnfæt-
is Botvinnik. Hann er auk þess 10 árum
yngri og kann það að ráða nokkru um úr-
slitin.
Hér er svo ein skák tefld af J. R. Capa-
blanca í Havanna 1912. Capablanca hefir
hvítt.
DROTTNINGARBRAGÐ.
1. d4 d5 2. e,3 eó. Betri leiðir fyrir svart
eru: 2. . . c5, 2. . . Bf5 eða 2. .. Rf6 og
svo g6. 3. Bd3 c6 4. Rf3 Bd6 5. Rbd2 f5.
Þessi leikur er í samræmi við byrjun svarts.
Þetta er svo kölluð Stonewall uppbygging.
Ókostir hennar eru þeir, að svörtu reitirnir
verða veikir og drotlningarbiskupinn lok-
ast inni. Hins vegar verður skákin lokuð og
erfitt fyrir hvítan að komast áleiðis. 6. c4
Df6 7. b3 Rh6 8. Bb2 0-0 9. Dc2 Rd7 10.
h3! Capablanca áformar að hróka langt og
hótar nú g4. Svartur gerir strax við þeirri
hótun, en við það skapar hann veilu á öðr-
um stað, sem hvítur færir sér þegar í nyt.
10. .. g6 11. 0-0-0 e5 12. dxe Rxe 13.
cxd cxd. Síðasti leikur hvíts sýnist ekki
góður vegna þess, að svartur hótar nú árás
með Be6 og Hc8. En nú kemur fyrsti leik-
urinn í fallegri leikfléttu. 14. Rc4H dxc4.
Hugmyndin með riddarafórninni er að
opna línur til árásar: skálínurnar tvær á