Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Page 55

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Page 55
N. Kv. 41 C. S. Forester: Brown liiim þrautseig'i I. kapítuli. Albert Brown sjóliði lá í andarslitrunum á Resolution. Hann lá í hnipri í skoru í mó- gráu hrauninu, sem er aðalefni þessarar eyðieyjar, sneri baki niður og kreppti hnén til hálfs í hitaóráði. Oðru hvoru tautaði hann nokkur óskiljanleg orð og mjakaði sér á hliðina, en féll svo jafnskjótt aftur í sömu skorður. Klæðnaður hans hafði eitt sinn verið hvítur, svo sem tíðkast meðal sjóliða. í hitabeltinu, en nú var hann svo ó- hreinn og útataður, slitinn og trosnaður, að hann var algerlega óþekkjanlegur og ekki annað eftir af honum en þunnir og skítugir tötrar, sem naumast héngu saman. Andlit hans var þrútið og afmyndað, og eins var um hendurnar, sem voru stokknar viðbjóðs- legum þrymlum eftir eiturstungur ótal flugna; urmull þeirra þyrlaðist yfir hon- um, þar sem hann lá á sólsviðnu grjótinu, svo að varla sást í hann. Fætur hans voru hræðilega þrútnir og skrámaðir, og héngu þó enn á þeim nokkur gauðrifin skóræksni. Þeir voru líkari vatnssósa flikkjum af hráu hrossakjöti en mannlegum fótum, og grimmasta mannvera jarðarinnar mundi ekki hafa getað litið þá án þess að komast við. Samt var það svo, að þótt lauslega væri litið á Albert Brown, þá leyndi það sér ekki, að það var ekki vegna flugnastungn- anna eða fótmeinanna, sem hann var að dauða kominn. Fatarytjurnar á hægri öxl Jians voru ataðar einkennilegu, brúnu klístri, og þegar liann mjakaði sér á hlið- ina, kom í ljós, að á bakinu var hann atað- ur á sama hátt; hægra megin á brjóstinu, rétt fyrir ofan þriðja rif, vætlaði dökkt blóð út úr skotsári. Brown lá á rima á miðri eyðieynni. Fyrir ofan hann gnæfðu háir hraundrangar og ruglingsleg þyrping af oddhvössum kletta- strýtum — eggjagrjót, sem gerði fullnaðar- grein fyrir fótabragði hans. Fyrir neðan hann voru brekkurnar grónar kaktus, skuggalegri, ljótri jurt, sem helzt minnir á nátttröll og þykknaði og þéttist, eftir því sem neðar dró; er hún alsett hvössum broddum, svo að ekki var að undra, þótt föt Browns væru rifin og tætt. í skugga kaktusanna lágu víða sísyfjaðir og sinnu- lausir legúanar, sem eru dröfnótt skriðdýr með kamb á baki. Yfir höfði hans svifu sjófuglar, og við og við flögraði einhver háðfuglinn úr neðri brekkunum upp til Browns, hoppaði í kringum hann og horfði á hann eins og hann fyndi til með honum. Niðri í sjávarmálinu, þar sem öldur Kyrra- hafsins gnauðuðu á hraungrýtinu, var ara- grúi ígúana að naga þarann, sem þeir lifa af, en í kringum þá flæktust rauðir krabb- ar og ýmis önnur láðs- og lagardýr, sem naumast eru til nema á Galapagos-eyjum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.