Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Qupperneq 58

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Qupperneq 58
44 BROWN ÞRAUTSEIGI N. Kv. kólnað nokkuð með fullorðinsaldrinum og þegar Burton-fjölskyldan fluttist til Ealing; þegar öllu var á botninn hvolft, voru líka heimilin nanðalík hvort öðru. Samt sem áður var Agatha í bezta skapi og raulaði lag á leiðinni til brautarstöðvarinnar. Þar lenti hún í sama klefa og Samille-Samarez sjóforingjaefni. Henni leizt þegar vel á hann og sá um leið hvaða maður hann var — daufgerður, brezkur sjóforingi af beztu tegund. Henni féll vel í geð, hve vel hann var klæddur og sléttur á kinn og hvernig hann roðnaði, þegar hún tók eftir því að hann horfði á hana. Hún vissi, að hann mundi brátt á- varpa hana og að hún mundi taka undir við hann. Bros Agöthu rak smiðshöggið á ófram- færni Samarez, Hann hossaðist til í sætinu og þreifaði ósjálfrátt ofan í vasa sína. „Er yður sama, þó að ég reyki?“ spurði hann hálfhás. „Já, alveg,“ sagði Agatha. „Mér fellur það vel.“ Hún hefði auðvitað ekki átt að segja svona mörg orð. Samarez tók fumandi hendi upp vindlaveski sitt úr silfri og eldspýtu- stokk, kveikti í vindlingi og saug að sér reykinn í djúpum dráttum til þess að geta jafnað sig. Agatha brosti enn við honum — saklausu brosi nunnu eða móður. Samarez varð að halda samtalinu áfram, og hið óhagganlega umræðuefni Englendingsins brauzt út af vörum hans eins og innblástur. „Viðbjóðslegt veður,“ mælti hann og kinkaði kolli að glugganum, þar sem febrú- ar-sólin háði vonlausa baráttu við febrúar- dimmuna. „Mér fellur það samt dável,“ svaraði Agatha; þá sem stóð hefði hún kunnað vel hvaða veðri sem var. „Auðvitað finnst yð- iir það vera munur eða í hitabeltinu,“ hélt hún áfram Samarez til mikillar furðu. — Hvernig í dauðanum gat hún vitað, að hann hefði verið í hitabeltinu? „0-já,“ svaraði hann, „viðbjóðslega heitt þar — stundum.“ „Á Kína-stöðvunum?“ spurði hún. Þekk- ing Agöthu á athöfnum sjóliðsins var ekki meiri en búast mátti við af miðstéttarkonu um 1893, en hún hafði einhvers staðar heyrt Kína-stöðvarnar nefndar og datt í hug að nefna þær, og tilsvar hans var feginsam- legt. „Já,“ mælti hann, „þangað var ég send- ur síðast.“ Kína-stöðvarnar urðu þeim ánægjulegt umtalsefni. Af því að Agatha var orðia nokkuð ör í skapi, gat hún talað — eða öllu lieldur hvatt Samarez til að tala — án þess að gera sig bera að vanþekkingu á efninu, og þau spjölluðu vinsamlega í nokkrar mín- útur. Samarez hitnaði um bjartaræturnar í nærveru þessarar glæsilegu konu, sem var svo snyrtileg og vinsamleg, raddfögur og hláturmild — og það var ekkert lítilmótlegt við hana. Numið var staðar á ýmsum stöðv- um án þess þau tækju eftir því, og Samarez varð alveg hissa, er þau litu út um gluggann og sáu að þau voru kornin á Lundúnabrú — Lundúnabrú á dimmu, röku febrúar- kvöldi. Honum voru það ónotaleg vonbrigði að þurfa að skilja við þessa vinkonu innan fárra mínútna, og honum fannst það heppni, að hún skyldi þó verða honum samferða til Charing Cross. Þá sem stóð átti hann fáa kunningja. Hann hafði leyfi í viku, og satt að segja vissi hann varla, hvernig hann ætti að eyða því. Hann hafði ætlað sér að borða kvöldverð í Junior Rag; ef til vildi rækist hann þar á einhvern kunnugan, og svo gerði hann ráð fyrir að fara í söngleikhús á eftir. Hann hafði gert þetta í nokkur kvöld, áður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.