Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Síða 59

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Síða 59
N. Kv. BROWN ÞRAUTSEIGI 45 en hann fór til Greenwich,og hann bar kvíð- boga fyrir þeirri áætlun, svo leiðindagjarn sem hann var. Á Kínastöðvunum, í liita- svækjunni undir sóltjöldunum, hafði hann hugsað sér, að borðsalurinn í sjóforingja- klúbbnum í London væri dýrðlegasti staður jarðar, en nú fannst honum hann ekki líkt því eins aðlaðandi. Og um fram allt — Agatha Brown var stæðileg kona og girnileg eftir því sem smekkurinn var 1893. Samarez hafði lítið haft af konum að segja. Manni, sem var eins skyldurækinn í stöðu sinni og hann, gat ekki. dottið hjúskapur í hug; hann hafði lítið kynnzt konum og gleymt þeim jafnóðum. Tilhneiginguna hafði hann — ekki með glöðu geði að vísu, en þó ekki íyllilega við- ráðanlega. Eins og á stóð hugsaði Samarez sér ekkert annað en kunningsskap. Hann langaði til að tala við konu, þessa konu, úr því að hann hafði brotið ísinn. Hann lang- aði ekkert til að tala við karla eða vera í einrúmi. Hann hefði orðið lafhræddur við ákafa tilfinninga sinna, ef honum hefði gef- izt tóm til að gera sér grein fyrir honum -— en því var ekki að heilsa. Þau höfðu skrölt yfir Waterloo Junction og voru nú að fara inn á brautarbrúna við Charing Cross.Gegn- um gluggann gat hann séð breitt og skollit- að fljótið, og Ijósin á Charing Cross-stöð- inni voru skammt undan. Agatha leit á handtöskuna sína uppi í hengigrindinni og var auðsjáanlega að búast til brottfarar. Sa- marez stóð upp í slingrandi klefanum, með lafandi hendur af óframfærni. „Bí — bíðið þér nú við,“ mælti hann, ^við þurfum ekki endilega að kveðjast hér þurfum þess ekki. Eig — eigum við ekki að borða kvöldverð einhvers staðar?“ Hann stóð og hélt sér í hengigrindina, skelfdur yfir því að hafa komið upp um sig og gert sig sekan um ókurteislega hegð- un; sakleysi og afsökun skein út úr augna- ráðinu. Agatha leit mildum augum í móti, því að hann var eins og hreinskilinn dreng- lmokki, sem biður um meiri köku. Hún ját- aði því hiklaust, rétt eins og hún væri móðir hans. Þólt talsvert fát væri á Samarez, þá kom Iiann fram með allri röggsemi duglegs at- hafnamanns, jafnskjótt sem hann var stig- inn út úr lestinni. Handtaska Agöthu og her- raannataska hans sjálfs voru merkt og sett í íarangursgeymsluna, kallað í vagn, og með nokkrum glæsibrag nefndi hann nafn á veit- ingastað, sem á þessum hráslagalegu dögum var hjóðandi inn í og ekki gerðar of miklar kröfur til klæðaburðar. Hófar vagnhestsins glumdu við steinleggingu götunnar, og þau sátu þarna hlið við hlið, meðan götuljósin liðu fram hjá. Þeim leið vel og þau fimdu þægilegan yl leggja hvort frá öðru, vinsemd og eftirvænt- ingu, sem þau gátu þó ekki skýrgreint nán- ar. Þeim miðaði alltof fljótt — Agöthu fannst það ekki skipta neinum togum þang- að til henni var hjálpað út úr vagninum af einkennisbúnum veitingaþjóni. Þau litu hvort á annað yfir borðið, auð- sjáanlega í nokkrum efa um, hvernig þetta mundi fara. Otrúlegt var, en satt samt, að liann sat á tali við skynsama og heiðvirða konu — og var það óvanalegt um sjómenn — og að liún skyldi sitja á veitingahúsi; hún var því sízt vön, og þarna sat vel sið- aður, laglegur, ungur maður á móti henni. Samarez pantaði góðan kvöldverð og kall- aði í vínveitingaþjóninn. Þegar Agatha heyrði vín nefnt, kipptist hún ofurlítið til í sætinu, því að faðir hennar var eindreginu og jafnvel stækur bindindismaður, sem ekki vildi vita af áfengi í húsum sínum. En þarna, innan um prúðbúið og glatt fólk og ( Framhald.)

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.