Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Síða 61

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Síða 61
N. Kv. PITCAIRN-EYJAN 47 «ins og ég sagði áðan. Allir geta gengið á frosnu vatni. Ég hef sjálfur gert það. Einn drengjanna sneri sér að honum. — Það þætti mér gaman að sjá! Alex. ef þeir koma aftur, má ég þá fara með þeim? — Vildir þú það? — Já. Tólf ára gömul stúlka greip í handlegg <írengsins. — Það mundir þú ekki gera, Dan. Við mundum ekki leyfa þér að fara. — Ég mundi koma aftur. — Ég efast ekki um, að þú vildir koma aftur, sagði Smith. En það gætu liðið mörg ár, án þess þú gætir það. Ef til vill mundir þú aldrei koma aftur. Hugsaðu þér, hversu einmana þú yrðir þá, og við hérna, án þín. Nei, drengur minn, vertu hérna, hvað sem fyrir kemur. Þið eigið aldrei að fara héð- an. Þið vitið ekki, livað við tekur úti í heiminum. — En það er samt það, sem við viljum vita, Alex! Hvers vegna hefur þú aldrei sagt okkur neitt um önnur lönd? — Það er langt síðan ég hef séð þau, og ég hef næstum gleymt þeim. — En viltu nú ekki segja okkur eitthvað um þau? — Jú, Alex, gerðu það. — Viltu segja okkur frá þeim í kvöld? Eitt augnablik dróst athygli barnanna frá skipinu, og þau sneru sér með ákafa að gamla manninum. — Já . . . . Nú skulum við sjá. Ef til vill geri ég það. — Nei, Alex ,lofaðu því. -— Ekki í kvöld. En ég skal gera það einhvern næstu daga, úr því að þið viljið endilega heyra frásagnir um ókunnug lönd. En þarna koma Fimmtudagur Oktober og Matt! Farið þið til þeirra og hjálpið þeim að setja bátinn. Þið telpurnar eigið að fara strax heim og segja mæðrum ykkar, að ég komi bráðum. Sólin var gengin til viðar. í austri sáust fyrstu stjörnurnar. Skipið var nú aðeins ó- greinilegur depill yzt út við sjóndeildar- hringinn. Gamli sjómaðurinn sat hreyfing- arlaus, studdi olnboganum á hnén og horfði á eftir skipinu, þar til það hvarf út í myrkr- ið, sem færðist yfir. Að lokum reis hann á fætur og gekk hægum skrefum niður bratt- an stíginn lieim á leið. Endir. SITT AF HVORU TÆI. Ameríshi úlvarpsfyrirlesarinn Walter Winc- liell, sem er kunnur m.a. fyrir það, hve geysihratt hann talar, skýrði það einu sinni, hvers vegna hann væri alltaf svo mikið að flýta sér: „Ef ég talaði liægt, þá gæti fólk heyrt, hvað ég segi, og komizt að raun um, hversu það er geysilega ó- merkilegt í raun og veru.“ * 4 * Einn af mörgum aðdáendum Winstons Churc- iiills spurði hann einu sinni, hvort honum þætti, ekki mikið til þess koma, að hjá honum væri æv- inlega húsfyllir, þegar hann héldi ræðu. „Jú, auðvitað,“ svaraði Churchill, „en mér dettur nú stundum í hug, að ef ég ætti ekki að halda ræðu, heldur ætti að hengja mig, þá yrðu þrisvar sinn- um fleiri.“ # 3}c Þrir skóburstarar höfðu stöðvar sínar við að- aljárnbrautarstöðina í Róm, en svo kom Antonio Vitto, og nú voru þeir orðnir fjórir. En eftir mánuð var aðeins einn eftir, og það var Antonio Vilto. Hann hafði nefnilega sett upp spjald með þessari áletrun: Annar skórinn yðar burstaður ókeypis. Eftir það var úti um hina í samkeppn- inni.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.