Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 13

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 13
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 11 ar til að nýta heimildirnar. Á sama tíma ganga innfæddir sjómenn at- vinnulausir og þetta er sú staða sem getur komið upp hér. Markaðir hafa breytt viðhorfínu til aflaverðmætis Það má segja að í Hafnarfirði hafi orðið kveikjan að fiskmarkaði og hér tók fyrsti markaðurinn til starfa. Með tilkomu hans breyttist margt og þá ekki síst viðhorf manna til verð- mætis aflans. Enda kom það í ljós að með tilkomu fiskmarkaðanna hækk- aði fiskverð um 20-30%. Ýmsir sjá ofsjónum yfir þessari miklu hækkun, sem varð og þá einkum á síðustu tveimur árum. Staðreyndin er hins- vegar sú að áður hafði fiskverð ekki hækkað nema sáralítið milli ára og við höfðum því aldrei við kauphækk- unum fólks í landi. Við teljum því að nú séum við komnir með laun, sem við áttum að hafa, ef launin hefðu fylgt þeirri launaþróun, sem átti sér stað í landi. Núna er verðið á fisk- mörkuðum komið í það hæsta sem það fer, og ég álít að á næstu árum verði sáralítil hækkun á mörkuðum eða jafnvel lækkun. Og þá lækkun verðum við að taka á okkur. Það eru engin líkindi til að fólk þurfi að öf- undast yfir launum okkar í náinni framtíð. Það veldur auðvitað gífurlegum mismun áð sumir geta komið afla á fiskmarkaði en aðrir ekki, það er því ósköp eðlilegt að menn vilji fá mark- aði í þeim landshlutum sem nú eru án þeirra. En vitaskuld er verð á fisk- mörkuðum háð markaðsaðstæðum hverju sinni og það er spurning hvort Verðlagsráð ætti ekki að ákveða þar lágmarksverð eins og tíðkast til dæm- is í Þýskalandi. Stöndum fast á sjómanna- frádrættinum Menn virðast almennt ekki hafa gert sér grein fyrir því með hvaða hætti þessi frádráttur sjómanna kom til. Hann kom upp í kjarasamningum þar sem hvorki gekk né rak þar til þáverandi ríkisstjórn kom með þetta sem launahækkun til að liðka fyrir samningum. Ef það á að lækka laun sjómanna nú, með því að taka þenn- an frádrátt af, þá mun hver einasta fleyta sigla í land. Um það er algjör samstaða meðal sjómanna þótt stétt- in sé því miður ósamstillt í mörgum málum. Þess vegna hafa sjómenn dregist aftur úr öðrum stéttum í mörgu. En það er vonin um góða veiði og góða afkomu, sem heldur okkur við efnið þótt það gangi ekki alltaf eftir. Stórfjölgun smábáta út í hött Mér finnst þessi smábátakaup landsmanna mjög mikil afturför. Það var allt í lagi á meðan það voru örfáir menn með smábátaútgerð, en þessi gífurlega fjölgun er alveg út í hött. Það er fiskveiðistefnan sem hefur stuðlað að þessu. Mér finnst alveg af og frá að menn fari að róa á þessum fleytum allt árið. Það ætti að banna þessum smábátum að fara á sjó frá september og að minnsta kosti fram í marz ár hvert. Ef þeir eiga svo að fara að veiða með netum þá gefur auga leið að þeir geta sárasjaldan far- ið að vitja um þau þegar allra veðra er von. Fiskurinn er þá orðinn ónýt vara þegar loks næst til hans. Þessir krókaleyfisbátar eru ein vit- leysan enn. Þeir, sem eru á þeim bát- um eru að afla sér veiðiréttinda og róa í öllum veðrum vegna þess. Þeir hafa jafnvel vaktaskipti til að ná sem mestu inn á þetta. Öryggismálin Þar er eitt stærsta hagsmunaatrið- ið, barátta fyrir nýrri björgunarþotu. Þá er og nauðsynlegt að notkun flot- búninga verði gerð að skyldu um borð í fiskiskipum. Þetta hvort- tveggja hefur verið mitt baráttumál til margra ára.“ Ingvi R. Einarsson hefur þetta að segja um fiskveiðistjórnun Hafrann- sóknar: „Það er svolítill beygur í mér gagn- vart Hafrannsóknastofnun því ég óttast að þeir finni ekki það magn sem er raunverulega í sjónum. Það hafi ekki mælst það magn sem er fyrir hendi,“ sagði Ingvi. — Er ágreiningur fiskifræðinga og loðnuskipstjóra orðinn fastur lið- ur? „Ágreiningurinn kemur alltaf upp þegar of litlum kvóta er úthlutað miðað við það magn sem er til af loðnu. Árið 1982 voru loðnuveiðar stoppaðar af þótt það væri almennt álit loðnuskipstjóra, að það væri ekki minni loðna í sjónum en árin áður. Það sama hefur átt sér stað núna. Við skipstjórarnir höfum óskað eftir því að fiskifræðingarnir komi um borð og fylgist með því hvað við erum að gera. Þeir hafa að vísu fallist á það en koma svo alltaf með þann fyrirslátt að þeir hafi ekki mannskap í það og hafi nóg annað að gera. Það hafa þrír skipstjórar frá okkur farið um borð í rannsóknarskipin og fylgst með því sem fiskifræðingarnir gera og því væri eðlilegt að þeir kæmu líka um borð til okkar og sæju hvað við ger- um. Það er til sérstök samstarfs- nefnd, sem er skipuð tveimur skip- stjórum (og er ég annar þeirra), tveimur útgerðarmönnum og jafn- mörgum fiskifræðingum. Hún á að vinna að samstarfi þessara aðila og það er af hinu góða,“ sagði Ingvar og heldur áfram: „Nú í haust fóru fjögur veiðiskip til leitar ásamt Hafrannsóknarskipun- um og það er varla hægt að segja að þessi skip hafi komist yfir það svæði sem til þurfti. Áður var bara notað eitt skip í þessar rannsóknir. Miðað við þetta hljóta tillögur um veiði að hafa verið byggðar á hreinum ágisk- unum undanfarið." Stofnsjóður var settur á með lög- um 1968. Hann kom til af því að út- gerðarmönnum þótti erfitt að greiða af skipurn þeim, sem þeir höfðu fest kaup á. Þeim þótti rétt að sjómenn legðu þeim lið við greiðslur. Rökin voru sú, að sjómenn myndu hagnast á því, að vera á nýjum skip- um. Lögin urðu samt þannig að greiðsl- ur voru teknar af óskiptu aflaverð- mæti skipa, af öllum skipum, hvort sem þau voru ný eða gömul. Allt í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.