Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 19

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 19
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 17 er búinn að vinna gott verk með því að fletta ofan af vinnubrögðum Grænfriðunga í mynd sinni. I þau þrjú ár síðan myndin var sýnd hér er hún búin að gera mikið gagn, en þeir Grænfriðungar hamast allstaðar gegn Magnúsi, stefna eða setja lög- bann á sýningar. Á kvikmyndahátíð í London ný- lega átti að sýna mynd Magnúsar. Er það spurðist út rigndi inn mótmælum frá Grænfriðungum og þeir fengu sett lögbann á sýningu myndarinnar þannig að hætt var við að sýna mynd- ina. Það er vissulega erfitt að fást við þetta. Sumar af þessum grúppum eru svo óprúttnar í málflutningi; bréf, sem þeir senda út um allar jarðir eru sem ég áður sagði oft full af ýkjum og algerumósannindum. Sumar aðferð- ir þeirra líkjast helst mafíuaðgerð- um. Þeir bjóðast til í fjáröflunarskyni að vernda framleiðendur og verzlun- arkeðjur með því að setja stimpil sinn á vörur þeirra og góðkenna þannig varninginn og verzlanirnar. Þessi að- ferð hefur mælst misjafnlega fyrir en þó munu margir greiða fyrir viður- kenningarmerkið af ótta við að verða hafðir að skotspæni ef þeir ekki greiða. Grænfriðungar eru nú víða að skipta um baráttumenn í framvarð- arsveitum ýmissa landa, til dæmis í Danmörku hafa þeir hreinsað út alla gömlu forgöngumennina, af því þeir reyndust ekki nógu góðir business- menn og sett inn nýtt fólk og tryllt- ara. Um þessa starfsemi má finna staðgóðargreinaríblöðum. Ég tel að það þýði ekkert að reyna lengur að friðmælast við þetta fólk. Það skilur ekki það mál. Það er svo sannarlega kominn tími til að það verði látið sæta ábyrgð gerða sinna. Kvótakerfíð Ég hef alveg frá því þessi kerfis- grautur byrjaði verið hlynntari sókn- armarksstýringu, en þessu kerfi sem er í dag. Fiskurinn flytur sig til og tegundir blandast og þegar menn sækja í þá tegund, sem þeir hafa leyfi til að veiða, þá fá þeir oft ekki annað í veiðarfærið en þá tegund, sem þeir mega ekki veiða. Miklar sögusagnir ganga um það að fiskimenn hendi óhemju af fiski, ef svo er, yrði það úr sögunni með sóknarmarksstýringu. Undir sóknarmarkinu yrði náttúr- lega skip flokkuð eins og nú er gert eftir stærð og gerð og veiðarfærum, og árinu skipt í veiðitímabil. Flugsan- lega þyrfti að stýra sérstaklega í sókn til dæmis í grálúðuna, sem veiðist mest á vorin og á afmörkuðu svæði. Sóknarmarkið eitt og sér hefur aldrei verið reynt. Friða ætti allt árið stærri svæði þar sem ungfiskur heldur sig, og meira en nú er gert. Síðan veiddu menn og kæmu með í land allan fisk sem inn á dekk kæmi. Skip af sömu stærð hefðu sömu möguleika. Allt þras um kaup og sölu á óveiddum fiski heyrði sögunni til. Með þessu myndu fiski- stofnanir byggjast hratt upp. SJOVA-AIMENNAR MUNU TRYGGJA SKIP SVO LENGI SEM ÍSLAND VERÐUR EYJA! SJÓVÁ-ALMENNAR urðu til við sameiningu tveggja öflugra vátryggingarfélaga árið 1989. Bæði félögin voru meðal annars með sjótrygg- ingar. Sjóvá var raunar stofnað sem sjótryggingarfélag árið 1918 af sömu mönnum og staðið höfðu að stofnun Eimskipafélagsins fáum árum fyrr. Á þeim langa tíma sem liðinn er hefur safnast saman ómetanleg þekking og dýrmæt reynsla af sjótryggingum. Trútt uppruna sínum munu SJÓVÁ-ALMENNAR tryggja skip svo lengi sem ísland verður eyja. SJOVADlluALMENNAR Traust félag með sterkar rætur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.