Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 29

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 29
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 27 þessu svæði. Nýverið sömdu Græn- lendingar við Rússa um veiðar við Austur-Grænland. Eftir ferð til Grænlands vorið 1990 kom ég með þá tillögu til íslenskra stjórnvalda að þegar yrði hafist handa um samn- ingagerð við þá um veiðar Islendinga við Austur-Grænland og fullyrti þar í greinargerð að ef við ekki semdum um þessar veiðiheimildir myndu aðr- ar þjóðir gera það og ná þar árangri bæði með samningum og síðar með veiðum. Þessi samningur er nú kom- inn á og ég spái því að innan fárra ára verði fleiri stofnar fiska en nú eru þekktir, taldir sameiginlegir fisk- stofnar, en Grænlendingar munu hins vegar selja aðgang í þá, burtséð frá því hvort við teljum þá þola meiri veiði eða ekki. Loks nú nýverið var sett fram krafa um veiðiheimildir við Færeyjar gegn veiðiheimildum hér við land þeim til handa. Þetta er í raun fyrsti vísirinn að því að vera ekki endalaust gefendur á afla. Við endurnýjun loðnusamninga, ef af verður, á að tryggja veiðar bæði við Grænland, Svalbarða og Jan-Mayen og jafnvel í Barentshafi. Það er mín skoðun að á undan- förnum árum höfum við verið algjör- ir skussar og sýnt tómlæti við öflun veiðiheimilda. Þessar veiðiheimildir hirða síðan aðrir, okkur til tjóns. Verðmyndun sjávarfangs Á undanförnum árum hefa átt sér stað mikilsverðar breytingar í verð- myndun sjávarfangs hérlendis. Breytingin hefur fært okkur fjær því verðstýringarkerfi, sem hefur verið við lýði síðustu áratugi í átt að frjálsri verðmyndun. Flestir eru sammála um að þessi þróun hafi verið til hins betra, m.a. vegna þess að frjálst verð hvetji hlutaðeigandi aðila til betri meðferðar á afla til sjós og lands og vandaðri ákvörðunartöku um ráð- stöfun aflans. Að öðru óbreyttu leið- ir þetta af sér aukið verðmæti aflans og vinnsluvirði framleiðslunnar, sem skilar sér til þjóðarbúsins alls. Útflutningur á ferskum fiski hefur verið þyrnir í augum sumra hags- munaaðila. En hlutdeild þessarar ráðstöfunarleiðar í heildarafla lands- manna hefur stórlega minnkað á allra síðustu árum. Ástæða fyrir þessari breytingu liggur aðallega í breyttri verðlagningu með tilkomu markaða, sem hefur verulega styrkt fiskverð hér innanlands í samkeppn- inni við erlenda markaði. Og er þá þess að gæta að sjómenn verða að taka á sig tekjulækkun, þegar fisk- verð lækkar, og búa einir stétta við slíka sjálfvirka tekjulækkun. Af þessu er sjómönnum nauðsynlegt að fá að njóta tekjuhækkunar þegar svo árar um afla eða verð. Samtök sjómanna hafa stutt frjálsa verðmyndun á fiski. Kannski fyrst og fremst vegna þess að hún hefur fært okkur sjómönnum auknar tekjur og við það er heldur ekkert að athuga. Sjómenn eins og flestir aðrir laun- þegar vilja fá í skiptum fyrir vinnu- framlag sitt sem mestar tekjur. Skil- yrði þess að sjómenn sætti sig við ofannefndar sveiflur í tekjum, er að um sé að ræða frjálsa verðmyndun. Enda verður slíkt ekki umborið nema að þeir séu sannfærðir um að raunverulega frjáls verðmyndun eigi sér stað. Þróun á fiskverði upp á síðkastið hefur fengið m.a. ráðamenn landsins til að fjalla um breytta tekjuskiptingu innan sjávarútvegsins. Gegn slíkum hugmyndum verður að spyrna við fótum. Þannig breyting á tekjuskipt- ingu sjávarútvegsins, sem hér um ræðir verður varla komið á nema með umsvifamiklu millifærslu- og sjóðakerfi innan greinarinnar, sem síðan rekur okkur aftur að upphafs- reitnum, þ.e. verðstýringu á fiski. Altæk frjáls verðmyndun á fiski á töluvert í land hérlendis. Nýleg breyting á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins mun eflaust færa okkur nær landi, en þó ekki alla leið. Fleira þarf að koma til, því breytt lög í þessum efnum tryggja ekki frjálst verð. Ýmiss almenn skilyrði fyrir frjálsan fiskmarkað þarf að styrkja. Þar mun fyrst og fremst reyna á vilja þeirra, sem taka beinan þátt sem framboðs- og eftirspurnaraðilar á markaðnum. Flér verður ekki farið í grafgötur með það, að hér er átt við þau fjölmörgu fyrirtæki, sem hafa á sömu hendi útgerð og vinnslu. Hugs- anlega mætti stefna að lagasetningu, sem setur skyldur á útgerðarfyrirtæki til að bjóða upp þann afla, sem þau hafa til ráðstöfunar hverju sinni. Að mínu mati er slík lagasetning aftur á móti algjört neyðarúrræði og skýtur jafnvel skökku við, þar sem um gæti verið að ræða þvingað frelsi. Heppi- legri leið er að málin þróist áfram í þeim farvegi, sem þau liggja. Allt tekur sinn tíma og til að forðast koll- steypur á þessum vettvangi er senni- lega heppilegast að eitt skref sé tekið í einu. Með því móti má búast við að frjáls verðmyndun hér á landi skjóti djúpum og varanlegum rótum öllum til hagsbóta. íslenskur sjávarútvegur og umheimurinn Fyrir jafn opið hagkerfi og það ís- lenzka, gefur það auga leið að nauð- synlegt er að halda góðum tengslum við þau lönd, sem við eigum samleið með í viðskiptum. Aðgangur með sjávarafurðir að tollfrjálsum mörk- uðum um heim allan er okkur lífs- nauðsynlegur. En spurningin er, hversu dýru verði kaupum við þenn- an aðgang. Tilhugsunin um að veita útlendingum heimild til fiskveiða hér við land í staðinn fyrir aðgang að toll- frjálsum markaði er afar fráhrind- andi, svo ekki sé meira sagt. Umræða um svokallaðan innri markað Evrópubandalagsins og hugsanlega aðild okkar að samningi um Evrópskt efnahagssvæði hefur vakið upp margar spurningar um hagsmuni íslensku þjóðarinnar til skemmri og lengri tíma. Ég hef allan fyrirvara á því, að aðild okkar að EES muni færa heim þann mikla ávinning, sem ráðamenn hafa gefið til kynna, þegar haft er í huga hvað þær heimildir geta táknað, sem stendur til að úthluta útlendingum til veiða hér við land. Ef þessar heimild- ir tákna upphafið að einhverju meira, sem við þurfum að semja um í framtíðinni, þá held ég að best sé heima setið í þessum efnum. Hér er kannski um óþarfa svartsýni að ræða, en í upphafi skal maður endir- inn skoða. Hvað sem öllu þessu líður verður
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.