Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 55

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 55
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53 NÝTTFÉLAG Nýstofnað er félag, sem hefur valið sér nafnið „Félag um nýja sjávarútvegsstefnu." í lögum, sem samþykkt voru á undirbúningsfundi þann 16. apríl 1992, segir svo: 1. Nafn félagsins er: Félag um nýja sjávarútvegsstefnu, kt. 700492- 2140. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. 2. Tilgangur félagsins er sá að vinna að því að móta og fylgja fram nýrri sjávarútvegsstefnu, sem hef- ur að markmiði að hámarka þjóð- hagslega arðsemi fiskimiðanna innan íslensku fiskveiðilögsög- unnar og skapa skilyrði til heil- brigðrar samkeppni á jafnréttis- grundvelli, í útgerð og fisk- vinnslu. 3. Félagið mun beita sér fyrir því að fiskveiðistjórnin byggist á afla- stýringu og ákvörðun um heildar- afla úr hverri tegund og að núver- andi aflamarkskerfi verði aflagt. Eftirlit með framkvæmd aflastýr- ingarinnar, á miðunum, verði á vegum Landhelgisgæslunnar. 4. Félagið er landsfélag. Félagar geta þeir einir orðið, sem sam- þykkja lög félagsins og tilgang þess. Innan félagsins starfar full- trúaráð skipað 7 fulltrúum úr hverju kjördæmi. Ráðsfulltrúar skulu vera stjórn félagsins til ráðuneytis. 5. Stjórn félagsins skipa níu menn. Stjórnin er kosin til eins árs í senn. Formaður er kosinn sérstaklega en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórnin skal kosin skriflega ef fleiri eru í kjöri en kjósa á. 6. Stjórnin velur tvo menn úr sínum hópi, sem ásamt formanni, mynda framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórn stjórnar dag- legum rekstri milli stjórnarfunda. 7. Reikningsár félagsins er alman- aksárið. Aðalfundur félagsins skal haldinn í aprílmánuði ár hvert. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum samtakanna. 8. Gjöld félaga til félagsins skal ákveða á aðalfundi. Ákvæði til bráðabirgða: Fyrir fyrsta landsfund (aðalfund) félagsins skal stjórnin, í samráði við fulltrúa- ráðið, semja álitsgerð um starfsháttu félagsins og um útfærslu á því hvernig beita skal aflastýringu í stað núverandi aflamarkskerfis við stjórn fiskveiða innan íslensku fiskveiða- lögsögunnar. Samþykkt á undirbúnings- stofnfundi 16. apríl 1992 Eins og sjá má í 2. grein laganna, þá ætlar félagið að berjast fyrir þeirri megin breytingu í fiskveiðistjórnun, að núverandi aflamagnskerfi (kvóta- kerfi) verði aflagt. í samtölum við foryztumenn hins nýstofnaða félags kemur fram að þeir telja að frjálst framsal á veiði- kvótum aðal ókost kerfisins. Þessu frjálsa framsali fylgi að það heildar- magn, sem leyft sé að veiða safnist á hendur fárra aðila, sem hafi tök á að afla sér fjármagns til kaupanna. Þessi þróun leiði síðan til stórfelldrar byggðaröskunar og atvinnuleysis. Þessi sjónarmið eru ekki nýlunda, en félagsmenn ætla að afla þeim fjöldafylgis, og taka foryztu fyrir þeim mikla fjölda andvígum núver- andi kvótakerfi, sem þeir segja dreifðan um allt land. Stjórn félagsins skipa: Hrólfur Gunnarsson, skipstjóri, formaður, og með honum í stjórn Árni Gíslason, skipstjóri og Óskar Karlsson, framkvæmdastjóri. Skrif- stofa félagsins er að Suðurlandsbraut 12, Reykjavík. Á Sjómannadaginn Sendum öllum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á hátíðisdegl þeirra. Verkalýðsfélag Akranes Kirkjubraut 40
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.